Back to results

University of Iceland

Áhrif COVID-19 á neyslu áfengis á Íslandi: Tímaraðagreining á sölutölum

Abstract

dc:description.abstract

Nokkrar umræður í þjóðfélaginu spunnust vegna breytinga á einkaneyslu við takmarkanir af völdum COVID-19 faraldursins. Á þeim tíma var því varpað fram að aukin heimavera gæti mögulega leitt til heildaraukningar áfengisneyslu. Slógu þá margir á létta strengi og komu með þá tillögu að taka ætti upp hinn danska hádegisbjór sem hversdagslegan sið. Að auki birtust fréttir af því að mikil aukning hefði orðið á smásölu ÁTVR á meðan samkomuhúsum og Flugstöð Leifs Eiríkssonar var skellt í lás. Við það leit dagsins ljós viðfangsefni þessarar ritgerðar og sú spurning hvort raunveruleg breyting hafi orðið á heildarneyslu áfengis á Íslandi eða hvort um tilfærslu neyslugerðar hafi verið að ræða. Á þeim tíma fundust ekki ritrýndar rannsóknir um efnið og því þótti tilvalið að taka efnið til ítarlegrar skoðunar. Því var framkvæmd tímaraðagreining með aðferðafræði Box-Jenkins og unnin forspá um sölu og þannig neyslu áfengis á Íslandi árið 2020. Sú spá var byggð á gögnum fyrir árin 1980-2019 og spáð fyrir árið 2020. Spáin var síðan borin saman við raunverulega sölu. Niðurstöður þessarar greiningar leiddu í ljós að ekki hafi verið um marktæka aukningu að ræða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólafur Hákon Sigurðarson 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43241
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43241

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Ólafur Hákon Sigurðarson 1998-. Áhrif COVID-19 á neyslu áfengis á Íslandi: Tímaraðagreining á sölutölum. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43241