University of Iceland
Margur er knár þó hann sé smár: Möguleikar og tækifæri Íslands til áhrifa í alþjóðasamfélaginu
Abstract
dc:description.abstractFlestum er kunnugt að smáríki eru lítil og hafa því ekki sama bolmagn og styrk og stór ríki. Aftur á móti er færrum kunnugt að þrátt fyrir það hafa þessir smáu gerendur í alþjóðakerfinu bæði möguleika og tækifæri til áhrifa í alþjóðasamfélaginu með ýmsum leiðum. Markmið þessarar ritgerðar er að greina möguleika og tækifæri Íslands sem smáríki til áhrifa í alþjóðasamfélaginu. Í ritgerðinni verður skoðað þá leið sem Ísland hefur farið en Ísland nýtti sér ímynd sína í mannréttindamálum til að hafa áhrif innan mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna er það sat í ráðinu á árunum 2018-2019. Með því að nýta sér ímynd sína sem fyrirmynd innan málaflokksins gat Ísland gerst „frumkvöðull í viðmiðum“ til að hafa áhrif innan ráðsins. Í ritgerðinni verður enn fremur sýnt fram á að Ísland nýtti sér einnig fleiri leiðir sem smáríkjakenningar benda á að séu smáríkjum gagnlegar til áhrifa innan alþjóðastofnana. Þær leiðir voru forgangsröðun og bandalagamyndun. Til þess að skoða möguleika og tækifæri Íslands á alþjóðavettvangi er ímynd Íslands og sjálfsmynd þess innan mannréttindamála skoðuð til að rýna í aðdraganda og setu Íslands í mannréttindaráðinu. Smáríkjakenningar verða notaðar til greiningar á viðfangsefninu. Niðurstöðurnar sýna að Ísland er fært um að hafa áhrif innan mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna ef það yfirstígur þær hindranir sem smæð þess setur því og vinnur markvisst og ákveðið að því að hafa áhrif.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Álfheiður Österby Christensen 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43183
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43183