University of Iceland
Hughyggja, formhyggja og fjármagn: Um tvær ímyndir fjármagns í kenningum hagfræðinga
Abstract
dc:description.abstractÍ meginstefnuhagfræði er farið með fjármagn sem samantekt einsleitra hluta, sem skortir um leið strúktúr, og er iðulega fönguð í stærðinni K í lýsingum meginstefnunnar á þeirri framleiðslu sem á sér stað í hagkerfinu. Innan austurrísku hagfræðihefðarinnar, á hinn bóginn, er fjármagn álitið fela í sér sundurleita hluti, sem tengjast saman í gegnum áætlanir frumkvöðla og fela því í sér strúktúr í heild sinni. Hvers vegna eru þessar tvær ímyndir svo frábrugðnar hvorri annarri? Svar við því má finna í samanburði á aðferðafræði meginstefnunnar annars vegar, og austurrísku hefðarinnar hins vegar. Er þar annars vegar um formhyggju að ræða, og hughyggju hins vegar. Formhyggjuleg nálgun meginstefnunnar hirðir ekkert um sambönd fjármagnsvara sín á milli, og leyfir sökum þess fyrir samlagningu fjármagns og einsleitt K. Í hughyggjulegri nálgun Austurríkismanna skipta áætlanir frumkvöðla um framleiðslu sína máli, en innan þeirra áætlana skipa fjármagnsvörur sess og hafa mismunandi not, og eru þar með nauðsynlega sundurleitar. Báðum ímyndum fjármagns eru hér gerð skil, og gagn þeirra og afleiðingar skoðaðar. Er hér kveðið, að hughyggjuleg nálgun Austurríkismanna byggi á styrkari fræðilegum stoðum en formhyggjuleg nálgun meginstefnunnar, sökum þess að í hughyggjunni byggja útskýringar á rakningu fyrirbæra til frumorsaka sinna, sem eru huglægir þættir á borð við áætlanir, væntingar og þarfir. Formhyggjan krefur ekki um slíkt, og er sem slík óáreiðanleg frá þekkingarfræðilegu sjónarhorni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnar Egill Hilmarsson 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43093
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43093