Back to results

University of Iceland

Komdu eins og þú ert: Áhrif gruggtónlistar á Kynslóð X

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um gruggtónlist (e. Grunge music) og hugtakið Kynslóð X (e. Generation X) og þau skoðuð í mannfræðilegu samhengi. Hugtökin verða skoðuð ein og sér og svo verður leitast við að skoða hvaða áhrif gruggið hafði á Kynslóð X. Gruggið verður til á síðari hluta 9. áratugar 20. aldar og varð á stuttum tíma ráðandi tónlistarstefna innan alheims rokksenunnar á fyrri hluta 10. áratugarins. Talað hefur verið um gruggið sem tónlistarstefnu Kynslóðar X og forsprakki senunnar, Kurt Cobain, oft verið útnefndur „talsmaður Kynslóðar X“. Notast verður við kenningar Pierre Bourdieu um habitus og svið (e. field). Skoðað verður hvernig habitus gruggsins og reglur innan sviðs stefnunnar býr til ákveðinn anda og viðhorf sem verður seinna einkennandi fyrir Kynslóð X. Skoðuð verða áhrif Kurt Cobain á svið gruggsins með tilliti til menningarlegs auðmagns (e. cultural capital). Hugtakið Kynslóð X verður skoðað með skírskotun í umfjöllun Sherry Ortner um hugtakið og mun ég skoða hvað það þýðir í raun og veru. Kenningar um habitus og svið verða svo notaðar til þess að skilja aðstæður Kynslóðar X innan sviðs fjölskyldunnar sem og samfélagsins í heild sinni. Sú umfjöllun verður svo dregin saman til þess að skilja hvaða áhrif gruggið hafði á Kynslóð X.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eiður Tjörvi Pálsson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43076
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43076

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eiður Tjörvi Pálsson 1994-. Komdu eins og þú ert: Áhrif gruggtónlistar á Kynslóð X. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43076