Back to results

University of Iceland

„Þannig að væntingarnar hafa engan veginn staðist“ : upplifun mæðra af styttingu vinnuvikunnar

Abstract

dc:description.abstract

Markmið styttingar vinnuvikunnar eru margvísleg en má helst nefna betri samræmingu vinnu og einkalífs og fjölgun samverustunda fjölskyldna, auk þess sem henni er ætlað að draga úr álagi og stuðla að jafnrétti kynjanna. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða reynslu mæðra af styttingunni með hliðsjón af markmiðum hennar. Ástæða þess að lagt var upp með þetta rannsóknarefni er tvíþætt. Annars vegar mikilvægi jafnréttissjónarmiða í tengslum við styttri vinnuviku og hins vegar út frá því álagi sem konur og mæður í fullri vinnu glíma við. Þrátt fyrir að árangur Íslands í jafnréttismálum sé markverður hallar enn á konur hér á landi. Til dæmis viðheldur íslenskur vinnumarkaður enn kynbundnum launamun og kynjaskiptingu og eru heimilisstörf, umönnun barna og verkstjórn heimilisins í meiri mæli á herðum mæðra. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem notast var við hálfopin einstaklingsviðtöl við mæður í gagnkynja samböndum með börn á leikskólaaldri. Niðurstöður leiddu í ljós að upplifun mæðranna samræmdist að litlu leyti markmiðum styttingarinnar. Væntingar stóðust ekki, álag hafði aukist í einhverjum tilfellum og heimilisverk og verkstjórn virtist falla meira í hendur kvennanna. Þessar niðurstöður varpa ljósi á þann kynjaða veruleika sem viðgengst í samfélaginu og því nokkuð ljóst að mikilvægt sé að huga sérstaklega að kynjasjónarmiðum við útfærslu og framkvæmd styttingar vinnuvikunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Birta Mjöll Kristinsdóttir 1990-
  • Kristín Harpa Hermóðsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42514
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42514

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Mjöll Kristinsdóttir 1990-; Kristín Harpa Hermóðsdóttir 1989-. „Þannig að væntingarnar hafa engan veginn staðist“ : upplifun mæðra af styttingu vinnuvikunnar. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42514