Back to results

University of Iceland

Umgengnisréttur samkvæmt 74.gr. barnarverndalaga nr. 80/2002

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fyrst og fremst gerð grein fyrir umgengnisrétti barns og kynforeldra þegar barn er í fóstri en einnig er vikið að umgengnisrétti barnsins við aðra nákomna. Þá er kannað hvaða þættir það eru sem helst hafa áhrif á ákvörðun um umgengnisréttinn. Bæði er fjallað um skrif fræðimanna varðandi þetta efni en einnig eru skoðaðir úrskurðir barnaverndanefndar Reykjavíkur sem og kærunefndar barnaverndarmála. Þá er gerður samanburður við danskan og norskan rétt og nokkrir dómar hæstaréttar og mannréttindadómstóls Evrópu eru reifaðir sem og álit umboðsmanns Alþingis. Meðal þeirra atriða sem skoðuð eru í framkvæmd barnaverndar Reykjavíkur og kærunefndar barnaverndarmála eru: • Hvort litið er til þess hver er ástæða fósturráðstöfunar við ákvörðun um umgengnisrétt. • Hvort litið er til þess hvort barn er í tímabundnu eða varanlegu fóstri við ákvörðun um umgengnisrétt. • Hvort litið er til þess hvort barn er í fóstri hjá vandamönnum eða vandalausum við ákvörðun um umgengnisrétt. • Hvort litið er til hegðunar kynforeldris eftir að barni hefur verið komið fyrir hjá fósturforeldrum við ákvörðun um umgengnisrétt. • Hvort litið er til viðhorfa barnsins til umgengninnar við ákvörðun um umgengnisrétt. • Hvort litið er til viðhorfa fósturforeldranna við ákvörðun um umgengnisrétt. • Hvort litið er til aldurs barns við upphaf fósturs og tengsla barnsins við kynforeldra við ákvörðun um umgengnisrétt. Til þess að geta fjallað um umgengnisréttinn er nauðsynlegt að varpa nokkru ljósi á barnaverndarstarf almennt og þá sérstaklega fósturráðstafanir vegna órjúfanlegra tengsla umgengnisréttar við það efni. Tekið skal fram að í ritgerðinni er með fóstri átt við ráðstafanir á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80 frá 2002. Þá verður aðeins fjallað um umgengnisrétt í skilningi bvl. en ekki barnalaga nr. 76 frá 2003.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Agnes Jónsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4196
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4196

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Agnes Jónsdóttir 1980-. Umgengnisréttur samkvæmt 74.gr. barnarverndalaga nr. 80/2002. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4196