Back to results

University of Iceland

Birtingamynd sjálfbærni og lúxus í laxveiðiferðaþjónustu á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Laxveiðiferðamennska á Íslandi er lítið rannsökuð. Þessi tegund ferðamennsku hefur lengi verið vinsæl og hefur farið ört vaxandi. Þróunin í greininni hefur orðið til þess að kröfur viðskiptavina um bættan aðbúnað og þjónustu hafa aukist vegna hækkunar á verði á veiðileyfum. Rekstraraðilar reyna að koma til móts við þessa eftirspurn viðskiptavina með því að uppfæra aðstöðuna hjá sér í meiri lúxus aðstöðu. Með þessari uppfærslu á veiðistöðunum hafa sumir rekstraraðilarnir innleitt sjálfbærni í sinn rekstur en aðrir ekki lagt áherslu á það. Sjálfbærni er sífellt að verða mikilvægari þáttur í rekstri á öllum sviðum. Því er mikilvægt að verða að auknum kröfum ferðamanna um sjálfbærni á ferðamannastöðum. Í þessari rannsókn er skoðað hvernig rekstararaðilar laxveiðistaða hafa betrumbætt þjónustu sína með tilliti til sjálfbærni og aukinnar eftirspurnar eftir lúxus aðstöðu og aðbúnaði. Einnig er skoðað hvernig nýting innviða við laxveiðiár er allan ársins hring með tillit til lífsferils áfangastaða. Fræðilegur kafli rannsóknarinnar fjallar um laxveiðiferðamennsku á Íslandi og hvernig sjálfbærni spilar stóran þátt í ferðamennsku. Þá er laxveiðin tengd við lúxus og skoðað hvernig laxveiðiferðamennska er óneitanlega lúxusferðamennska. Rannsóknin byggir á aðferðum eigindlegra rannsóknaraðferða. Tekin voru sjö eigindleg hálfstöðluð viðtöl við rekstraraðila veiðistaða. Niðurstöður leiddu í ljós að aðaláherslan á sjálfbærni í greininni hefur verið á að vernda stofninn en lítil áhersla hefur verið lögð á sjálfbærni í rekstri veiðihúsanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Hugrún Sara Maríusardóttir 1996-
  • Steinunn Guðbrandsdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41374
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41374

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hugrún Sara Maríusardóttir 1996-; Steinunn Guðbrandsdóttir 2000-. Birtingamynd sjálfbærni og lúxus í laxveiðiferðaþjónustu á Íslandi. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41374