Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að skoða upplifun og reynslu nemenda sem innritast höfðu á framhaldsskólabraut og væntingum þeirra til framtíðar. Framkvæmd var eigindleg tilviksrannsókn þar sem leitað var til níu ungmenna og fjögurra fagaðila á sviði framhaldsskólabrautar, til að kynnast þeirra sýn á stöðu ungmennanna við brautina. Helstu niðurstöður varpa ljósi á að frelsi nemendanna til námsvals er afar takmarkað. Fagfólk sammælist þessu og hvetja til fjölgunar styttri námsleiða til að mæta þörfum þeirra nemenda sem ljúka ekki framhaldsskólabraut eða hverfa á brott að henni lokinni. Vert væri að fjölga styttri námsleiðum á þessu skólastigi með það fyrir augum að mæta áhuga þeirra og réttindum til að efla þroska sinn. Tvískipting var í svörum nemenda um ánægju þeirra varðandi það að innritast á þessa braut. Sum skildu stöðu sína vel og áttu ekki von á öðru en að þurfa að fara á framhaldsskólabraut. Hinn hópurinn var ósáttur við hlutskipti sitt sem samræmdist ekki sjálfsmynd þeirra og sum töldu veru á brautinni jaðarsetja sig. Þær neikvæðu hugmyndir breyttust fljótt í afar jákvæða upplifun af brautinni. Þau töldu veru sína þar hafa styrkt trú sína á eigin getu og sjálfsöryggi. Framtíðarsýn nemendanna var í þróun og endurspeglaði virka hugsun, en umfram allt lögðu þau upp með að áhugi myndi ráða vali, án þess að vita hvert stefnan væri sett. Styrkleikar brautarinnar að mati fagaðila eru góð og skilvirk teymisvinna sem og kennarar brautarinnar. Megin lærdómar þessarar rannsóknar eru að betur þarf að koma til móts við nemendur sem glíma við námslegar hindranir ef ætlunin er að draga úr brotthvarfi frá námi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Rós Einarsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/41132
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/41132