University of Iceland
Heima er þar sem hjartað slær. Mikilvægt samtal við samfélagið
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er samfélagslegt hlutverk safna skoðað og þá sérstaklega út frá kenningum nýju safnafræðinnar sem ruddi sér til rúms í lok tuttugustu aldar. Farið er yfir sögu og uppruna safna og safnastarfs og merkileg atvik í heimssögunni skoðuð í tengslum við breytingar sem hafa orðið í umhverfi og starfi safna, þær settar í samhengi við nútíð og fortíð, en þó með höfuðáherslu á bókasafnið. Fjallað er um verkefnið Heima er þar sem hjartað slær (www.hiwthi.org), sem er samfélagsmiðað verkefni, sérstaklega ætlað konum af erlendu bergi brotnum, viðkvæmum jaðarhópi innan samfélagsins, og það mátað við kenningar nýju safnafræðinnar. Auk þess er umhverfið, sem verkefnið sprettur úr, skoðað og því velt upp hvað þurfi til að verkefni af þessum toga geti orðið að veruleika. Orðræða er tekin til umfjöllunar. Hvernig hún umlykur okkur öllum stundum og hefur áhrif á hvernig við hegðum okkur og hugsum. Hvar orðræðan birtist í safnaheiminum; innan safna, utan þeirra eða jafnvel í sjálfri safnabyggingunni. Eins er gagnrýnin safnastefna skoðuð og rætt um hvað felist í afeðlun og berskjöldun í sýningarstarfi og þá verða dæmi tekin um söfn sem fylgja nú nýju safnafræðinni og hafa komist að því hve dýrmætt það getur reynst söfnum og samfélagi að hafa fleiri en eina rödd.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna María Cornette 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40880
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40880