Back to results

University of Iceland

Staðalímyndir asískra kvenna á Íslandi og endurspeglun þeirra í bókmenntum og kvikmynd

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar ritgerðar er að kanna staðalímyndir asískra kvenna á Íslandi og endurspeglun þeirra í kvikmynd og bókmenntum. Einnig eru skoðaðar fræðilegar rannsóknir og umfjöllun um asískar konur eins og hún birtist í íslenskum fjölmiðlum. Til að lesendur geti betur áttað sig á þeim, er fjallað um alþjóðalega búferlaflutninga kvenna frá Austurlöndum til Vesturlanda og skilgreiningar á fordómum og staðalímyndum. Konum er ávallt ætlað að framfylgja margþættum skyldum sínum sem eiginkonur og mæður og haga sér samkvæmt væntingum samfélagsins. Þess vegna er nauðsynlegt að fjalla í upphafi ritgerðar um eðli kvenna, kynhlutverk, kenningar og hugmyndir um konur í karlaveldissamfélögum. Þar er stuðst við kenningar frá Aristótelesi, John Stuart Mill, Hariett Taylor Mill og Simone de Beauvoir. Einnig er hugað að sköpunarsögu kvenna úr Biblíunni og væntingum samfélagsins til kvenna í fornum samfélögum, t.d. í gamla assýríska ríkinu, íslömskum samfélögum, fornum taílenskum bókmenntaritum og evrópskum samfélögum miðalda. Í lokin eru greindar asískar kvennalýsingar og staðalímyndir þeirra í skáldsögunni Annað líf (2000) eftir Auði Jónsdóttur, smásögunni „Sagan af Svarra víkingi og Song Yong“ (1992) eftir Böðvar Guðmundsson og kvikmyndinni Maður eins og ég (2002) í leikstjórn Róberts Inga Douglas. Svo virðist sem staðalímyndir asískra kvenna séu fastmótaðar í íslensku samfélagi, hvort sem er í raunveruleikanum, fjölmiðlum, bókmenntum og kvikmyndum og hafa þær áhrif á daglegt líf asískra kvenna sem hér búa.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Trililani, Cynthia, 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4036
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4036

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Trililani, Cynthia, 1974-. Staðalímyndir asískra kvenna á Íslandi og endurspeglun þeirra í bókmenntum og kvikmynd. 2009. http://hdl.handle.net/1946/4036