Back to results

University of Iceland

Músikmeðferð einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm. Sjáanlegar vísbendingar um líðan.

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Þeim sem eru með heilabilunarsjúkdóm fer fjölgandi vegna hærri lífaldurs á heimsvísu. Einkenni heilabilunar eru krefjandi sérstaklega hegðunartruflanir. Rannsóknir sýna að geðrofslyf eru notuð í nokkru mæli til að draga úr hegðunartruflunum en mikilvægt er að skoða aðrar leiðir en lyf, til að bæta líðan sjúklinga. Rannsóknir hafa sýnt að mögulega getur músíkmeðferð bætt líðan fólks með heilabilunarsjúkdóma. Markmið: Að kanna áhrif músíkmeðferðar á líðan einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma. Aðferðafræði: Rannsóknin var framsýn megindleg áhorfsrannsókn og notað var mælitækið Music in Dementia Assessment Scales (MiDAS). Við tölfræðilega úrvinnslu var notuð lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði. Þeim sem var boðin þátttaka voru sjúklingar á deild L-4 á Landakoti sem voru í músíkmeðferð á rannsóknartímabilinu. Niðurstöður: Þátttakendur voru 52 einstaklingar (29 konur; 23 karlar), meðalaldur var 78,7 ár (lægst 55 ár, hæst 95 ár, staðalfrávik 10,3). Niðurstöður sýndu að músíkmeðferð hafði jákvæð áhrif á líðan einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm. Heildareinkunn úr mælitækinu gaf til kynna að 50-75% einstaklinga sýndi betri líðan eftir músíkmeðferð og vísbendingar eru um að endurtekin meðferð hafi í sumum tilfellum jákvæð áhrif. Þegar horft er til vísbendinga um líðan samkvæmt einstökum þáttum mælitækisins sést aukinn áhugi (hjá 50% einstaklinga), svörun (50%), frumkvæði (50%), aðild (50-75%) og ánægja (50-75%) hjá þátttakenda. Ályktun: Niðurstöður sýna jákvæð áhrif músíkmeðferðar á fólk með heilabilunarsjúkdóm og að hún geti verið gagnleg sér eða samhliða lyfjameðferð til að bæta líðan þeirra sem eru með heilabilunarsjúkdóm. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk hafi í huga kosti músíkmeðferðar þegar meðferð fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóm er valin. Jafnframt er mikilvægt að huga að innleiðingu á notkun músíkmeðferðar bæði snemma í sjúkdómsferlinu og þegar einstaklingurinn er kominn á hjúkrunarheimili. Lykilorð: Heilabilun, músíkmeðferð, MiDAS, hegðunartruflanir, aldraðir, viðbótarmeðferð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnhildur Kildelund 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39771
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39771

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnhildur Kildelund 1973-. Músikmeðferð einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm. Sjáanlegar vísbendingar um líðan.. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39771