University of Iceland
Forvarnargildi reglubundinnar hreyfingar fyrr á lífsleiðinni gegn heilasjúkdómum á borð við Alzheimer
Abstract
dc:description.abstractFjöldi aldraðra í heiminum er alltaf að aukast en áætlað er að árið 2050 verði fjöldi þeirra sem eru á aldrinum 65 ára og eldri búinn að hækka upp í rúmlega 21% af fjölda fólks í heiminum. Með hækkandi aldri aukast líkurnar á meðal annars aldurstengdum vitrænum skerðingum en áætlað er að um 115 milljónir manns muni þjást af heilabilun af einhverju tagi árið 2050. Alzheimer er taugahrörnunarsjúkdómur í miðtaugakerfi og er sjúkdómurinn algengasta orsök heilabilunar en rekja má 60-80% tilfella heilabilunnar til Alzheimer. Ýmsar aðferðir geta hjálpað til við að halda heilanum heilbrigðum og ásamt því dregið úr líkum á heilasjúkdómum á borð við Alzheimer og er markmið ritgerðarinnar því að skoða áhrif hreyfingar nánar, það er að segja hvort hreyfing fyrr á lífsleiðinni geti haft fyrirbyggjandi áhrif á heilasjúkdóma á borð við Alzheimer. Niðurstöður fjölmargra rannsókna gefa vísbendingu um tengsl á milli reglubundinnar hreyfingar og minni áhættu á Alzheimer. Alzheimer er þó sjúkdómur þar sem flókið samspil öldrunar, erfðafræðilegra og umhverfislegra áhættuþátta spila saman og er því ekki verið að fullyrða að hreyfing ein sem slík geti komið í veg fyrir sjúkdóminn en hún á þátt sinn í fyrirbyggingu sjúkdómsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kolbrún Gréta Guðmundsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39698
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39698