Back to results

University of Iceland

TS þvagfærayfirlit: Fara sjúklingar með grun um nýrnasteina í réttan farveg til greiningar?

Abstract

dc:description.abstract

Inngangur: Nýrnasteinasjúkdómur er algengur og fer tíðni hans hækkandi á heimsvísu. Sjúkdómurinn leggst á allan aldur, kyn og kynþætti og hefur háa endurkomutíðni. Ýmsar erlendar leiðbeiningar eru til um myndgreiningu þegar grunur er um nýrnasteina en á Landspítalanum (LSH) eru leiðbeiningar í gæðahandbók. Þær mæla með TS þvagfærayfirliti en helsti gallinn við þá rannsókn er að í henni felst jónandi geislun. Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að skoða leiðir sjúklinga frá bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi sem fara í TS þvagfærayfirlit ef grunur er um nýrnasteina og athuga hvort þeir fóru rétta leið miðað við leiðbeiningar í gæðahandbók Landspítalans. Skoðað var hvort hægt sé að gera betur þegar kemur að myndgreiningu á nýrnasteinum, hvort önnur myndgreining sem ekki felur í sér jónandi geislun henti betur eða jafnvel engin myndgreining ef farið væri eftir erlendum leiðbeiningum. Efni og aðferðir: Um er að ræða afturvirka rannsókn en í úrtaki voru allir sjúklingar sem fóru í TS þvagfærayfirlit frá bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi árið 2020. Heildarfjöldi sjúklinga sem uppfylltu skilyrði rannsóknarinnar voru 734 og voru gögn sótt úr Agfa, Sögu og Heilsugátt. Kannað var hvort sjúklingurinn hefði farið í réttan farveg miðað við flæðirit íslensku leiðbeininganna út frá gögnunum. Á sama hátt voru gögnin borin saman við erlendar leiðbeiningar til að leggja mat á hvaða leið sjúklingurinn hefði farið samkvæmt þeim. Niðurstöður: Rannsóknin sýndi að ekki lágu fyrir blóð- og þvagprufur hjá 36,9% sjúklinga áður en beiðni í TS þvagfærayfirlit var send. Alls voru 22,5% sjúklinga sem fóru í réttan farveg miðað við gildandi leiðbeiningar. Samanborið við erlendar leiðbeiningar hefði a.m.k. 36,1% sjúklinga farið í ómskoðun sem fyrstu rannsókn. Ályktun: Stór hluti sjúklinga frá bráðamóttöku LSH með grun um nýrnasteina fara ekki í réttan farveg til greiningar miðað við gildandi leiðbeiningar. Ef farið væri eftir erlendum leiðbeiningum væru færri sjúklingar sem uppfylltu skilyrði fyrir TS rannsókn og myndi það takmarka notkun jónandi geislunar. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þörf er á að uppfæra þær leiðbeiningar sem eru í gildi og út frá erlendum leiðbeiningum ætti ómskoðun að vera viðeigandi sem fyrsta rannsókn fyrir stóran hóp sjúklinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Silja Helgadóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38409
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38409

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Silja Helgadóttir 1995-. TS þvagfærayfirlit: Fara sjúklingar með grun um nýrnasteina í réttan farveg til greiningar?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38409