Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð verður kannað hvort ADHD greining sé frelsandi eða hamlandi fyrir einstaklinginn sem hana fær og hvernig skilja beri slíkar greiningar þannig að þær nýtist einstaklingum sem hjálpartæki og verði síður hamlandi. Í inngangi mun ég fyrst fjalla stuttlega um hvað fékk mig til að fara í ADHD greiningu. Næst mun ég útleggja ADHD frá klínísku sjónarhorni, ég mun taka saman hver greiningarskilmerkin eru, hvernig greining fer fram og tölfræði um tíðni ADHD greininga. Þar á eftir mun ég reifa stuttlega þann mælanlega mun sem finnst á heilum einstaklinga sem ekki eru með ADHD og einstaklinga sem greindir eru með ADHD en slíkur líffræðilegur munur gæti verið grundvöllur fyrir því að líta á ADHD sem náttúrulega flokkun. Þá mun ég reifa veitingakenningu Ástu um fólkstegundir, og bera saman við viðbragðskenningu og skilgreiningarkenningu. Ég mun gera greinarmun á stofnanaveitingu og samfélagsveitingu, náttúrulegri og samfélagslegri flokkun. Næst mun ég skoða ADHD út frá veitingakenningu Ástu og færa rök fyrir því að ADHD greining sé samfélagsleg flokkun sem er stofnanaveitt. Ég mun einnig gera grein fyrir mismunandi tíðni ADHD hjá strákum og stelpum. Því næst mun ég fjalla um frelsi og hömlur sem fylgja ADHD greiningu. Ég mun skýra það frelsi sem felst í því að greiningin býr til merkingarfræðilegt samhengi sem gerir okkur kleift að útskýra ýmiss konar annars ómerkingarbæra hegðun. Ég mun þá einnig vísa til umfjöllunar Hackings um hvernig lýsingar geta haft áhrif á mögulegar ætlanir og tilvistarhætti. Ég mun færa rök fyrir því hvernig slíkar lýsingar geta einnig verið hamlandi og þá sérstaklega ef samfélagsleg flokkun á borð við ADHD er tekin sem náttúruleg. Að lokum mun ég fjalla um mína eigin greiningu í ljósi þessara kenninga og færa rök fyrir því að þó svo að ADHD greining geti verið mikilvægt hjálpartæki þá megi hún ekki útiloka möguleika einstaklingsins til að skapa sína eigin merkingu og ætlanir út frá eigin forsendum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Baldvin Flóki Bjarnason 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38256
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38256