Back to results

University of Iceland

„Það hafa bara allir kjaftnóg að gera“ Ferlagreining og umbætur á húseiningaframleiðslu Steypustöðvarinnar í Borgarnesi

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi hefur það meginmarkmið að greina framleiðsluferil forsteyptra húseininga í verksmiðju Steypustöðvarinnar í Borgarnesi. Enn fremur að skila umbótatillögum í anda straumlínustjórnunar sem nýtast fyrirtækinu. Steypustöðin hefur sex starfsstöðvar og er eitt stærsta fyrirtæki í mannvirkjageiranum á Íslandi. Fyrirtækið byggir á grunni sem nær aftur til ársins 1947 en það hefur áratugum saman verið frumkvöðull á sviði steypu og steypulausna. Frá árinu 2016 hefur Loftorka í Borgarnesi verið í eigu Steypustöðvarinnar og frá ársbyrjun 2019 hefur nafn Steypustöðvarinnar tekið yfir Loftorkunafnið. Rannsókn þessi er raundæmisrannsókn sem telst til tilviksrannsóknar og öflun frumgagna fór fram með aðferðum eigindlegra aðferðafræða. Tekin voru átta viðtöl við starfsmenn sem höfðu ólíka aðkomu að framleiðsluferlinu. Viðmælendur voru valdir þannig að hægt væri að greina sem skýrasta heildarmynd út frá viðtölum við þá. Áhersla í viðtölunum var að afla upplýsinga um verkferla í kringum framleiðslu forsteyptra húseininga og upplifun starfsmanna af framleiðsluferlinu. Afmörkun rannsóknarinnar er með þeim hætti að einungis var greint það ferli sem tilheyrir framleiðslu forsteyptra húseininga frá járnabindingu til lestunar. Dregin var upp mynd af núverandi stöðu út frá upplifun viðmælenda, rýnt í stöðuna og hún borin saman við núverandi gæðahandbók og vinnuflæðisskema yfir framleiðsluferlið. Ferlagreiningin var svo skoðuð með tilliti til mögulegra umbóta á framleiðsluferlinu út frá kenningum straumlínustjórnunar. Afurðin sem viðtalsrannsóknin skilaði af sér er nákvæm greining á framleiðsluferlinu og að auki umbótatillögur sem Steypustöðin mun geta nýtt sér. Til dæmis er hægt að nota þessar upplýsingar við þjálfun nýrra starfsmanna og til að gerðar gátlista fyrir hvern framleiðsluþátt sem hægt er að nýta við reglubundin verk og tryggja stöðlun vinnu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Hlín Alfreðsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38156
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38156

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Hlín Alfreðsdóttir 1979-. „Það hafa bara allir kjaftnóg að gera“ Ferlagreining og umbætur á húseiningaframleiðslu Steypustöðvarinnar í Borgarnesi. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38156