Back to results

University of Iceland

Áhugakönnun fyrir börn og unglinga: Er hægt að meta áhugasvið byggt á áhugamálum og tómstundum ?

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort hægt væri að meta áhuga barna og ungmenna út frá athöfnum þeirra í frítíma. Frumútgáfa tómstundakönnunar var gerð byggt á þremur meginflokkum tómstundatengdra athafna: í rafheimum, formlegar og óformlegar. Þátttakendur voru 283, 128 stúlkur og 139 drengir, á aldrinum 15-16 ára. Góð dreifing var á öllum atriðum og allir svarmöguleikar voru nýttir, kynjamunur í svörum þátttakenda var eins og við var búist í ljósi fyrri rannsókna á áhuga hérlendis (Einarsdóttir og Rounds, 2020). Það gefur til kynna að hægt sé að nota tómstundatengd atriði við mat á áhuga unglinga. Til að meta formgerð tómstundáhuga var nokkrum leitandi greiningum beitt. Niðurstöður meginþáttagreiningar (e. Principle-component analysis) og fjölvíddargreiningar (e. Multidimensional Scaling) skiluðu víddum sem svipar til þeirra sem hafa komið fram í fyrri rannsóknum á áhuga t.d. vídda líkan Prediger (1982) um fólk-hluti og hugmynd-gögn sem og kenningu Gottfredson (1981) um áhrif kynbundinna staðalímynda á áhuga og fyrri rannsóknum hérlendis (Einarsdóttir, Rounds og Su, 2010). Fylgni á milli niðurstöðu meginþáttagreiningar og fjölvíddargreiningar gaf til kynna að þessar aðferðir skili svipuðum víddum en þó ekki alveg þeim sömu. Túlkun var ekki óyggjandi þar sem þetta er fyrsta tilraun til túlkunnar og er hún gerð með þeim fyrirvara. Niðurstöður þáttagreiningar (e.Unweighted-least-squared; áttaþáttalausn) benda til þekktra áhugasviða t.d. félags- og handverkssviðs Hollands (1997). Skapandi þáttur kom einnig skýrt fram sem svipar til listasviðs. Atriði tengd rafheimum t.d. tölvuleikir mynduðu sérþátt og vísbendingar voru um að staðsetning athafna hefðu áhrif líkt og sést hefur í fyrri rannsóknum á börnum (Tracey og Waard, 1998). Niðurstöður rannsóknarinnar eru mikilvægar fyrir hagnýta og markvissa náms- og starfsráðgjöf með ungmennum og fyrir frekari rannsóknir á þróun áhuga barna hérlendis. Lykilhugtök: Áhugakönnun, formgerð áhuga barna, tómstundatengdar athafnir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna María Vignir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37932
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37932

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna María Vignir 1992-. Áhugakönnun fyrir börn og unglinga: Er hægt að meta áhugasvið byggt á áhugamálum og tómstundum ?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37932