Back to results

University of Iceland

Ósýnilegu stúlkurnar: Stúlkur með ADHD og skólakerfið

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum hefur umræðan um ADHD (e.Attention Deficit Hyperactivity Disorder) orðið meiri og sýnilegri. Vitað er til þess að stúlkur með ADHD hafa ekki fengið jafnmikla athygli og drengir með röskunina (Hong o.fl, 2014). Sýnt hefur verið fram á að ógreint ADHD getur haft miklar og neikvæðar afleiðingar á námsframvindu einstaklinga, félagsleg samskipti og sjálfsmynd þeirra (Sigrún Harðardóttir og Tinna Halldórsdóttir, 2008). Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í þroska barna og má því ætla að mikilvægt sé að skólastarfið byggi á heildarsýn og einstaklingsmiðuðum þörfum nemenda. Markmið ritgerðarinnar var að varpa ljósi á ólíkar birtingarmyndir ADHD hjá stúlkum og drengjum. Lögð er áhersla á unglingsstúlkur með ADHD á aldrinum 12 – 19 ára með ADHD og það flókna tilfinningarferli sem felst í því að vera unglingsstúlka með röskunina ásamt því að skoða hvaða stuðningur er til staðar innan stendur þeim til boða í grunn- og framhaldsskóla. Niðurstöður ritgerðinnar sýna fram á að lítill skilningur virðist vera til staðar í samfélaginu gagnvart stúlkum með ADHD. Stefnan Skóli án aðgreiningar virðist ekki hafa náð markmiði sínu þegar kemur að þörfum nemenda og er talið að svo sé vegna skorts á fjármagni og fagfólki innan skólanna. Út frá niðurstöðum ritgerðarinnar má ætla að bæta þurfi stuðning í grunn- og framhaldsskóum og að fjölga þurfi fagfólki innan veggja skólans, þar á meðal skólafélagsráðgjöfum (Sigrún Harðardóttir og Sigrún Júlíusdóttir, 2019).

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Marín Mánadóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37451
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37451

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Marín Mánadóttir 1994-. Ósýnilegu stúlkurnar: Stúlkur með ADHD og skólakerfið. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37451