Back to results

University of Iceland

Aðkoma aðstandenda í geðendurhæfingu ástvinar. Upplýsingamiðlun og samvinna

Abstract

dc:description.abstract

Afleiðingar geðsjúkdóma hafa ekki aðeins áhrif á einstaklinginn sem glímir við þá heldur hefur sjúkdómurinn áhrif á alla í fjölskyldunni. Hlutverk fjölskyldu í bataferli eftir alvarlegan og viðvarandi geðsjúkdóm fjölskyldumeðlims er mikilvægt og hefur orðið enn mikilvægara með tímanum. Helstu ástæður þess eru að innlagnir á geðdeildir og löng sjúkrahúsvist sjúklinga hafa á undanförnum árum farið að heyra til undantekninga. Þjóðfélagið hefur breyst og úrræði fyrir sjúklinga með geðræn vandamál - og fjölskyldur þeirra - eru oft ómarkviss. Fjölskyldur sjúklinga með geðsjúkdóma hafa þar af leiðandi í auknum mæli þurft að taka að sér umönnun veikra ástvina. Þetta getur verið neikvætt og jákvætt, allt eftir aðstæðum. Það sem er jákvætt er að þessi þróun gefur einstaklingum sem glíma við geðræna sjúkdóma tækifæri til að halda sambandi við fjölskyldur sínar en á sama tíma hefur samfélagsleg umönnun einnig aukið álag á fjölskyldumeðlimi. Niðurstaða þessarar ritgerðar er að fjölskylda einstaklings sem glímir við geðræn vandamál geti verið mikilvægur þáttur í endurhæfingar- og bataferli. Fjölskyldan þarf góða leiðsögn og fræðslu og fagaðilar geta stuðlað að þátttöku aðstandenda á margvíslegan hátt. Mikilvægt er að upplýsingaflæði sé gott svo og öll samskipti. Einstaklingar með geðsjúkdóma eru ólíkir og með mismunandi greiningar. Þá eiga þeir ólíkar fjölskyldur. Þess vegna er mikilvægt að fagaðilar séu sveigjanlegir í sínum nálgunum og meðvitaðir um að ólíkar leiðir skili bestum árangri fyrir mismunandi fjölskyldur. Einnig er mikilvægt að fagaðilar taki tillit til menningar- og tungumálþarfa fjölskyldna eða annarra umönnunaraðila. Lykilorð: þjónustuþegi, aðstandendur, umönnunaraðilar, fjölskylda, geðheilbrigðisþjónusta, endurhæfing, bati, samvinna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Maren Freyja Haraldsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37436
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37436

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Maren Freyja Haraldsdóttir 1986-. Aðkoma aðstandenda í geðendurhæfingu ástvinar. Upplýsingamiðlun og samvinna. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37436