Back to results

University of Iceland

Ólík sjónarmið um stjórnun fiskveiða: Hver eru hin ólíku sjónarmið til uppboða aflaheimilda í íslenskum sjávarútvegi?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn verður fjallað um sjávarútveg sem lengi hefur verið ein af meginstoðum íslensks efnahagslífs. Rannsakandi og viðmælendur hafa orðið vitni að háværum umræðum í fleiri ár um núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og virðist ríkja tortryggni gagnvart útdeilingu aflaheimilda á Íslandi, jafnt hjá fólki innan sem utan sjávarútvegsins. Sjónarmið eru ansi ólík og skapast hafa deilur í samfélaginu um hvort bæta eigi við nýrri grein í stjórnarskrá Íslands um eignarhald á auðlindum hafsins og aðgangsgreiðslur á næstu árum. Markmið rannsóknarinnar var að skoða ólík sjónarmið á uppboðum aflaheimilda á Íslandi. Hvort það ætti eftir að leysa umræddan vanda og hvað hafa ber í huga ef uppboð aflaheimilda yrði tekið upp hér á landi. Einnig verður saga fiskveiðistjórnunar rakin og sú þróun sem hefur orðið á greininni í gegnum árin. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við fólk sem hefur sterkar skoðanir á greininni og hvernig henni er stjórnað. Spurningar voru samdar með tilliti til hins fræðilega kafla rannsóknarinnar og til að fá hugmyndir um hvernig bæta megi stjórn fiskveiða á Íslandi og núverandi kvótakerfi. Niðurstöður benda til þess að mjög skiptar skoðanir séu á því hvort bjóða eigi upp aflaheimildirnar og erfitt er að ímynda sér að nokkurn tímann muni nást fullkomin sátt um greinina. Flestir eru sammála um að kvótakerfið hafi hjálpað mikið við að vernda fiskistofna og sporna gegn ofveiði og leitt til þess að greinin er farin að skila góðum hagnaði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birna Sif Árnadóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37386
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37386

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birna Sif Árnadóttir 1994-. Ólík sjónarmið um stjórnun fiskveiða: Hver eru hin ólíku sjónarmið til uppboða aflaheimilda í íslenskum sjávarútvegi?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37386