Back to results

University of Iceland

„Það er aðalhlutverk og aukahlutverk í ferlinu“: Upplifun feðra af fósturláti á öðrum hluta meðgöngu

Abstract

dc:description.abstract

Eitt helsta markmið rannsóknarinnar var að skoða upplifun feðra af fósturláti á öðrum hluta meðgöngu. Ennfremur var leitast eftir því að kanna hvernig feður upplifa hlutverk sitt í tengslum við fósturlát ásamt reynslu þeirra af stuðningi í gegnum ferlið og þá með tilliti til faglegs stuðnings eins og félagsráðgjafar. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og tekin viðtöl við sjö feður. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að feður upplifa ýmiss konar tilfinningar í kjölfar fósturláts. Oft finna þeir fyrir ákveðnu gagnsleysi og upplifa sig í aukahlutverki. Feður virðast upplifa sitt helsta hlutverk í tengslum við fósturlátið sem stuðning við barnsmóður sína. Feður eiga í misjöfnum samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk þótt flestir greini frá jákvæðu viðmóti. Feður virðast hafa þörf fyrir að vita um praktíska þætti varðandi fósturlátið. Feður leita helst eftir stuðning hjá barnsmóður sinni og nánustu aðstandendum. Feður virðast hafa þörf fyrir frekari stuðning þótt misjafnt sé hvernig þeir beri sig eftir honum. Niðurstöður gáfu tilkynna að fagstéttir, eins og félagsráðgjafar, gætu haft mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að upplifun feðra af fósturláti og þá til dæmis með því að veita þeim aukinn stuðning, frekari upplýsingar og styðja þá í hlutverki sínu sem stuðningsaðila barnsmóður þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hörn Ragnarsdóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37288
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37288

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hörn Ragnarsdóttir 1978-. „Það er aðalhlutverk og aukahlutverk í ferlinu“: Upplifun feðra af fósturláti á öðrum hluta meðgöngu. 2020. http://hdl.handle.net/1946/37288