Back to results

University of Iceland

Konur í krísu: Hinsegin tími og rými í tveimur nýlegum skáldsögum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um tvær nýlegar skáldsögur, Kópavogskróniku eftir Kamillu Einarsdóttur og Millilendingu eftir Jónas Reyni Gunnarsson, sem eiga það sameiginlegt að fjalla um konur í sjálfsmyndarkrísu. Farið verður yfir síðnútímann og hvernig hinsegin fræði spretta út frá honum. Einnig verður fjallað um þriðju bylgju femínismans, hvernig hann á í samspili við síðnútímann og gagnrýni hans á þröngar skilgreiningar á hugtakinu farsæll kvenleiki. Þá verður notast við hugtök Halberstam um hinsegin tíma og rými sem eru hugtök innan hinsegin fræðanna. Fjallað verður um sjálfsmyndarkrísu aðalpersónanna og verður hún skoðuð út frá þeirri togstreitu sem einkennir líf kvenna í síðnútímanum. Skoðað verður hvernig aðalpersónurnar lifa í hinsegin tíma og rými sem getur verið einkenni, eða hluti af, leit aðalpersónanna af sjálfum sér og stað sínum í veröldinni. Leitast verður við að útskýra hvernig sjálfsmyndakrísa aðalpersónanna birtist, hvaða orsakir gætu legið að baki og hver birtingarmynd krísunnar er í hverju tilviki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Ösp Aðalsteinsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36980
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36980

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Ösp Aðalsteinsdóttir 1993-. Konur í krísu: Hinsegin tími og rými í tveimur nýlegum skáldsögum. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36980