Back to results

University of Iceland

Strandabyggð, fyrr og nú : verkefnasafn

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnasafn þetta er lokaverkefni til B.Ed. prófs í grunnskólakennsku með áherslu á samfélagsgreinar við deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Markmiðið með verkefnasafninu er að búa til heildstætt safn verkefna um Strandabyggð þar sem aðal áhersla er lögð á ígrundun um heimabyggðina, sögulega grenndarkennslu og staðhætti. Hugmyndin er sú að kynna 10-13 ára nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík fyrir sögulegum atburðum og stöðum sveitafélagsins ásamt staðháttum og örnefnum. Einnig er leitast við að fá nemendur til að ígrunda það sem Strandabyggð hefur upp á að bjóða, bæði fyrir íbúa og ferðamenn. Greinargerðin sem fylgir verkefnasafninu inniheldur það sem liggur að baki þeim verkefnum sem þar má finna. Verkefnin eru unnin með markmið aðalnámskrá grunnskóla til hliðsjónar. Sérstaklega er fjallað um markmið aðalnámskrár um fjölbreytni náms og grunnstoðir námskráarinnar sem og um samfélagsgreinar og hvernig markmið þeirra birtast í námskránni. Þeir fræðimenn sem höfðu hvað mest áhrif á gerð verkefnasafnsins eru John Dewey, Robert Sternberg og Benjamin Bloom. Þar ber helst að nefna mannlega hæfileika sem hafðir eru að leiðarljósi í verkefnunum ásamt þeim greindum og sviðum sem leggja skal áherslu á. Ennfremur leggja verkefnin megin áherslu á raunveruleg viðfangsefni og eru þau því unnin í og með eigin náttúru og umhverfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Guðbjörg Rósmundsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36771
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36771

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Guðbjörg Rósmundsdóttir 1991-. Strandabyggð, fyrr og nú : verkefnasafn. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36771