University of Iceland
Sjálfsmynd unglinga og áhættuhegðun : hver eru tengsl sjálfsmyndar og áhættuhegðunar?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð verður fjallað um sjálfsmynd unglinga, hvernig samfélagsmiðlar hafa áhrif á sjálfsmyndina og hvort slæm sjálfsmynd leiði frekar til áhættuhegðunar. Á unglingsárunum fer mikil sjálfsmyndarleit fram en á þessu tímabili eru unglingar að reyna að átta sig á því hverjir þeir eru sem einstaklingar. Unglingar eru áhrifagjarnir og því margt sem hefur áhrif á sjálfsmynd þeirra og hegðun á þessum aldri. Jafningjar fara að skipta meira máli á þessu tímabili og eru unglingar tilbúnir að leggja mikið á sig til að fá samþykki þeirra. Samfélagsmiðlanotkun hefur aukist mikið á síðustu árum og eru unglingar nú til dags flestir komnir með snjallsíma og því með samfélagsmiðla við höndina öllum stundum. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að mikil samfélagsmiðlanotkun geti valdið kvíða og streitu og haft slæm áhrif á sjálfsmynd unglinga. Sjálfsmynd hefur mikið að segja þegar kemur að áhættuhegðun unglinga þar sem slæm sjálfsmynd getur aukið líkur á að einstaklingur sýni áhættusama hegðun á meðan sterk sjálfsmynd dregur úr líkunum á að leiðast út í áhættuhegðun. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á mikilvægi sterkrar sjálfsmyndar unglinga sem forvörn gegn áhættuhegðun ásamt því að gera grein fyrir áhrifum samfélagsmiðla á heilsu ungmenna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36662
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36662