Back to results

University of Iceland

Icesave-deila Íslendinga og Breta

Abstract

dc:description.abstract

Bretar beittu hryðjuverkalögum til að frysta eignir á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi. Icesave-deilan dregur nafn sitt af reikningunum og er deilan um innstæður þeirra. Eftir að Landsbankinn féll hefur verið deilt um hver ber ábyrgð á innstæðum reikninganna. Deilan nær lengra en til Bretlands því aðildarríki Evrópusambandsins drógust inn í málið þegar íslenska ríkisstjórnin bar fyrir sig að lagalegur ágreiningur væri til staðar. Stjórnvöld voru ekki tilbúin að fallast á að Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta bæri að ábyrgjast innstæður umfram þá upphæð sem væri í sjóðnum. Íslendingar sætta sig heldur ekki við beitingu hryðjuverkalaganna en í þessari ritgerð er komist að þeirri niðurstöðu að íslensku „neyðarlögin“ voru ein af ástæðum þess að Bretar beittu hryðjuverkalögunum. Farið er yfir deiluna í sögulegu samhengi og stuðst er meðal annars við umræður á Alþingi, neðri málstofu og lávarðadeild breska þingsins. Einnig er mikið stuðst við efni úr fjölmiðlum. Ekki er hægt að svara öllum spurningum sem vakna varðandi deiluna þar sem hún er enn óleyst og ný gögn eru alltaf að bætast við.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bríet Konráðsdóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3657
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3657

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bríet Konráðsdóttir 1978-. Icesave-deila Íslendinga og Breta. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3657