Back to results

University of Iceland

Vitamin D status in pregnancy and the association with gestational diabetes mellitus

Abstract

dc:description.abstract

Inngangur: Rannsóknir benda til þess að skortur á D-vítamíni á meðgöngu hafi áhrif á bæði móður og barn í móðurkviði. D-vítamínskortur hefur verið tengdur við aukna hættu á meðgöngusykursýki, sem er einn algengasti fylgikvilli á meðgöngu. D-vítamínstaða barnshafandi kvenna hefur aldrei áður verið rannsökuð á Íslandi. Markmið: Að meta D-vítamínstöðu barnshafandi kvenna, athuga hvort inntaka fæðubótarefna tengist styrk D-vítamíns í blóði ásamt því að meta hvort munur sé á styrk D-vítamíns í blóði milli árstíða. Einnig verður kannað hvort tengsl sjáist á milli D-vítamínstöðu kvennanna og meðgöngusykursýki. Aðferðir: Þversniðsrannsókn meðal barnshafandi kvenna (n=942; 70% af hæfum sýnum) sem mættu í fyrstu ómskoðun á 11.-14. viku meðgöngu á tímabilinu október 2017 - mars 2018 á Landspítala. Þátttakendur voru spurðir út í mataræði og notkun á fæðubótarefnum sem innihalda D-vítamín síðastliðna þrjá mánuði, líkamsþyngd, hæð og félagslega stöðu. Gögn um hvort þátttakendur þróuðu með sér meðgöngusykursýki fengust fyrir 902 konur. Niðurstöður: Meðalstyrkur 25OHD í sermi var 63±24 nmol/L. Um 70% kvennanna voru með styrk 25OHD ≥50 nmol/L (talið fullnægjandi), 25% voru með 30-49,9 nmol/L (ófullnægjandi) og 5% <30 nmol/L (skortur). 82% kvennanna (n=766) notuðu fæðubótarefni sem innihalda D-vítamín daglega. Þær sem sögðust neyta D-vítamín fæðubótarefna daglega voru með hærri styrk 25OHD en þær sem neyttu þeirra aldrei eða sjaldnar en einu sinni í viku (66±24 vs. 45±18 nmol/L, p<0,01). Um það bil fjórðungur þeirra sem sagðist neyta D-vítamín fæðubótarefna daglega var með styrk 25OHD undir 50 nmol/L. Meðal 11% kvennanna (n=104), sem sögðust aldrei eða sjaldan taka fæðubótarefni sem innihélt D-vítamín, var meðalstyrkur 25OHD 45±18 nmol/L en næstum 70% þeirra voru með styrk <50 nmol/L og þar af 18% <30 nmol/L. Engin tengsl fundust á milli líkamsþyngdarstuðuls (BMI) eða félagslegrar stöðu og styrks 25OHD í sermi, fyrir utan hjúskaparstöðu, þar sem einstæðar mæður voru ólíklegri til að vera með fullnægjandi D-vítamínstöðu (p<0,05). Lítilsháttar breytileiki greindist á meðalstyrk D-vítamíns milli mánaða hjá þeim sem notuðu ekki D-vítamín. Samt sem áður fannst ekki tölfræðilega marktækur munur á milli þeirra sem notuðu ekki D-vítamín og þeirra sem tóku fæðubótarefni með D-vítamíni daglega. Hlutfall kvenna sem greindist með meðgöngusykursýki var 17,8% í þeim hópi kvenna sem mældist með S-25OHD <30 nmol/L samanborið við 12,8% hjá konum með styrk S-25OHD >75 nmol/L, en munurinn var ekki tölfræðilega marktækur. Ályktanir: Um þriðjungur barnshafandi kvenna var með ófullnægjandi 25OHD styrk eða skort og um það bil fjórðungur þeirra sem sagðist taka fæðubótarefni með D-vítamíni daglega var með 25OHD <50 nmol/L. Engin greinileg tengsl sáust á milli D-vítamínstöðu og meðgöngusykursýki í rannsókninni. Þrátt fyrir hvatningu íslenskra stjórnvalda til daglegrar D-vítamín fæðubótar er þörf á auknu átaki til að auka fjölda þeirra kvenna sem fara eftir ráðleggingum. Einnig þyrfti að skoða hvort ráðleggja þurfi hærri skammta af D-vítamíni fyrir konur sem hafa ekki tekið D-vítamín fyrir meðgöngu svo þær nái fullnægjandi gildum hraðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Sigrún Magnúsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35811
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35811

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Sigrún Magnúsdóttir 1993-. Vitamin D status in pregnancy and the association with gestational diabetes mellitus. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35811