University of Iceland
Algengi áhættuþátta og tengsl þeirra við fylgikvilla eftir valkvæðar liðskiptaaðgerðir á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractInngangur: Helsta orsök liðskipta er slitgigt, sem er liðsjúkdómur sem talinn er orsakast af álagi og áverkum á liðinn en er viðhaldið með bólgu- og viðgerðarsvari. Lokastig meðferðar við slitgigt eru liðskipti sem hafa í för með sér sjaldgæfa en alvarlega fylgikvilla. Mögulega er unnt að hafa áhrif á áhættuþætti fylgikvillanna til að bæta útkomu aðgerðanna. Líklegt er að með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar verði biðlisti eftir liðskiptaaðgerðum á Landspítalanum langvarandi, en tímann á biðlistanum má nota til að bæta árangur aðgerðarinnar. Markmið: Að kanna tíðni áhættuþátta fylgikvilla og tengsl þeirra við sýkingar eftir valkvæðar liðskiptaaðgerðir. Efni og aðferðir: Alls var 706 einstaklingum sem undirgengust valkvæð liðskipti á hné eða mjöðm á Landspítalanum fylgt eftir. Heilsufar sjúklinga var metið fyrir aðgerð með spurningalista, blóðprufum og lífmælingum ásamt því að glúkósi var mældur í blóði sjúklinga eftir aðgerð. Loks var upplýsingum um tíðni fylgikvilla safnað við sex vikna endurkomu. Fylgni fylgikvilla við svör spurningalista og niðurstöðu blóðprufumælinga var könnuð Niðurstöður: Alls fengu 151 (21,3%) sjúklingur einhverja af 14 fylgikvillum sem skráðir voru við sex vikna endurkomu. Algengastir voru fylgikvillarnir vessun úr sári (8,1%) og sárasýking (7,5%). Alvarlegasti skráði fylgikvilli var liðsýking (0,8%). Einstaklingar sem höfðu fengið blóðgjöf fyrir aðgerð voru líklegri til þess að fá fylgikvilla og fengu 44,4% þeirra fylgikvilla eftir aðgerðina á meðan 20,7% þeirra sem ekki fengu blóðgjöf við aðgerðina fengu fylgikvilla í kjölfar aðgerðar (p-gildi = 0.0335). Umræður: Tengsl fundust milli blóðgjafa og sýkingafylgikvilla eftir liðskiptaaðgerðir. Vonir standa til að unnt sé að nota þessar niðurstöður til að hanna inngrip til að fækka blóðgjöfum eftir aðgerðir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jón Gunnar Kristjónsson 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35627
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35627