Back to results

University of Iceland

"Atmen, du unsichtbares Gedicht" - Rilkes Behandlung in den "Sonetten an Orpheus".

Abstract

dc:description.abstract

Eftirfarandi ritgerð er verkefni til B.A.-prófs í þýsku við Háskóla Íslands. Í henni verður fjallað um ljóðformið sonnettuna og hvernig skáldið Rainer Maria Rilke fer með það í ljóðabálknum „Sonette an Orpheus“. Ritgerðinni er skipt í tvo hluta sem hvorir tveggja skiptast í fjóra undirkafla. Í fyrri hluta ritgerðarinnar verður fjallað með almennum hætti um sonnettuna. Í fyrsta undirkaflanum verður sonnettan skilgreind og farið verður yfir einkenni ytra og innra forms hennar. Næst verður sagt frá uppruna sonnettunnar þar sem ítölsk sonnettuhefð og skáldið Petrarca verða í forgrunni. Í þriðja undirkafla er útbreiðsla sonnettunnar útskýrð þar sem kafað verður í spænska, franska og enska sonnettuhefð. Enn fremur verða staðalform frönsku og ensku sonnettanna kynnt. Í síðasta undirkafla fyrri hluta verður vikið að þróun þýskumælandi sonnettunnar. Ásamt því að kynna ljóðskáld og þróun verður einnig hinu „fullkomna“ sonnettuformi A.W. Schlegel lýst. Í síðari hluta ritgerðarinnar verður sjónum beint að verkinu „Sonette an Orpheus“ auk þess sem sérstaklega verður fjallað um sköpunarferli höfundarins. Í öðrum undirkafla verður ljóðabálkurinn greindur. Þar verða fyrst ytri einkenni sonnettanna greind, þ.e.a.s. rímskemu, línustikl, þrípunktur og bragarhættir. Næst verður fjallað um innra form ljóðbálksins í heild. Þar á eftir verða ummæli um bálkinn reifuð og að lokum verður reynt að setja ljóðbálkinn í sögulegt samhengi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynhildur Ásgeirsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
de

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35562
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35562

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynhildur Ásgeirsdóttir 1995-. "Atmen, du unsichtbares Gedicht" - Rilkes Behandlung in den "Sonetten an Orpheus".. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35562