Back to results

University of Iceland

Vaxa íslensk nýsköpunarfyrirtæki nógu hratt? Leitnigreining á vaxtarferli valinna nýsköpunarfyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Áhrif nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi á hagvöxt hafa lengi verið vinsælt umfjöllunar- og rannsóknarefni. Á undanförnum árum hefur aukin athygli einnig verið veitt fyrirtækjum sem vaxa sérstaklega hratt yfir ákveðið tímabil, svokölluðum sprettfyrirtækjum, og áhrifum þeirra á hagvöxt og atvinnu. Markmið þessarar rannsóknar er að greina þróun í vexti íslenskra nýsköpunarfyrirtækja, sem nú eru starfandi, og athuga hvernig þau hafa fallið að skilgreiningu sprettfyrirtækja á síðustu árum. Til þess eru rekstrartekjur ellefu íslenskra nýsköpunarfyrirtækja, yfir tímabilið 1995-2019, greindar með aðferð leitnigreiningar. Meðal annarra fyrirtækja eru Marel og Össur rannsökuð, en sökum árangurs og stærðar þeirra eru þau notuð sem eins konar viðmiðunarfyrirtæki í rannsókninni. Umræða skapast gjarnan um það hvort vöxtur Marels og Össurar hafi verið einstakur og óvenjulega mikill fyrir íslensk fyrirtæki eða hvort íslensk nýsköpunarfyrirtæki séu að vaxa nógu hratt til þess að geta fetað í fótspor þeirra. Niðurstöður sýna að sjö af þeim ellefu fyrirtækjum, sem tekin eru til skoðunar, gátu talist til sprettfyrirtækja á rannsóknartímabilinu. Marel og Össur hafa verið í sérflokki þegar kemur að vexti íslenskra nýsköpunarfyrirtækja og hafa tekið bæði fleiri og stærri spretti heldur en önnur fyrirtæki í úrtakinu. Ef eitthvert nýsköpunarfyrirtækjanna, sem hér er fjallað um, mun vaxa jafn hratt og mikið og Marel eða Össur hafa gert, þá er sá vöxtur ekki langt á veg kominn. Þó má benda á marga sterka spretti hjá íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum á síðustu árum, sem erfitt er að útiloka að séu upphaf vaxtartímabils eins og það sem Marel og Össur áttu, að minnsta kosti út frá þeim gögnum sem hér eru notuð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafsteinn Björn Gunnarsson 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35507
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35507

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafsteinn Björn Gunnarsson 1996-. Vaxa íslensk nýsköpunarfyrirtæki nógu hratt? Leitnigreining á vaxtarferli valinna nýsköpunarfyrirtækja. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35507