{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/35260"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/35260","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Fall WOW air: Áhrif falls WOW air á þjóðarbú Íslands","abstract":"Mikill uppgangur hefur orðið í ferðaþjónustu Íslands á undanförnum árum og hefur ferðamönnum fjölgað gríðarlega á sama tíma. Ein af ástæðum þess var aukið sætaframboð íslensku flugfélaganna en flugfélagið WOW air er talið hafa átt stóran þátt í þessum aukna ferðamannastraumi til landsins með komu sinni á flugmarkaðinn árið 2011. Síðasta áratuginn hefur ferðaþjónustan orðið stærsta atvinnugrein Íslands og var fall WOW air því áhyggjuefni fyrir efnahag landsins. Félagið var komið með 37% markaðshlutdeild í flugi til og frá Íslandi árið 2018 svo ljóst er að flugfélagið skilur eftir sig stórt skarð á flugmarkaðnum. Markmið þessarar rannsóknar er að leggja mat á áhrif falls WOW air á þjóðarbúið eftir mikinn uppgang í ferðaþjónustu landsins síðustu ár. Við greininguna var að mestu notast við gögn frá Ferðamálastofu, Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands og WOW air. Rannsakandi byrjaði á því að kynna sér sögu WOW air og efnahagsleg umsvif félagsins ásamt því að skoða þróun útflutnings hér á landi undanfarin ár. Rannsakandi kynnti sér síðan þjóðhagfræðilíkön sem notuð voru við greiningu ritgerðarinnar. Þá voru skammtímaáhrif falls WOW air á þjóðarbúið greind ásamt áhrifum líklegra inngripa Seðlabanka Íslands. Næst var lagt mat á tölulega greiningu fallsins. Byrjað var á því að skoða hve mikið útflutningur landsins dróst saman við fall WOW air og síðan lagt mat á útflutningsjöfnu fyrir Ísland samkvæmt hagrannsóknarlíkönum til að meta hve lengi áfallið muni vara í útflutningi landsins. Niðurstaðan var síðan notuð til að áætla áhrif á eftirspurn og framleiðslu. Áhrif fallsins og sá samdráttur sem varð í kjölfar þess voru síðan greind á verga landsframleiðslu Íslands. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að til skamms tíma hafði fall WOW air þau efnahagslegu áhrif að landsframleiðsla Íslands dróst saman við fast verðlag en atvinnuleysi landsins jókst við minnkandi verðbólgu og óbreytt gengi gjaldmiðils. Hvað tölulega greiningu varðar má gera ráð fyrir að útflutningur landsins hafi dregist saman um 47.514 milljónir króna við fallið. Þegar búið var að reikna út þau margföldunaráhrif sem mynduðust í kjölfar fallsins bendir allt til þess að verg landsframleiðsla Íslands hafi dregist saman um 85.525 milljónir króna að öðru óbreyttu við fall WOW air árið 2019.","abstract_html":"Mikill uppgangur hefur orðið í ferðaþjónustu Íslands á undanförnum árum og hefur ferðamönnum fjölgað gríðarlega á sama tíma. Ein af ástæðum þess var aukið sætaframboð íslensku flugfélaganna en flugfélagið WOW air er talið hafa átt stóran þátt í þessum aukna ferðamannastraumi til landsins með komu sinni á flugmarkaðinn árið 2011. Síðasta áratuginn hefur ferðaþjónustan orðið stærsta atvinnugrein Íslands og var fall WOW air því áhyggjuefni fyrir efnahag landsins. Félagið var komið með 37% markaðshlutdeild í flugi til og frá Íslandi árið 2018 svo ljóst er að flugfélagið skilur eftir sig stórt skarð á flugmarkaðnum. Markmið þessarar rannsóknar er að leggja mat á áhrif falls WOW air á þjóðarbúið eftir mikinn uppgang í ferðaþjónustu landsins síðustu ár. Við greininguna var að mestu notast við gögn frá Ferðamálastofu, Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands og WOW air. Rannsakandi byrjaði á því að kynna sér sögu WOW air og efnahagsleg umsvif félagsins ásamt því að skoða þróun útflutnings hér á landi undanfarin ár. Rannsakandi kynnti sér síðan þjóðhagfræðilíkön sem notuð voru við greiningu ritgerðarinnar. Þá voru skammtímaáhrif falls WOW air á þjóðarbúið greind ásamt áhrifum líklegra inngripa Seðlabanka Íslands. Næst var lagt mat á tölulega greiningu fallsins. Byrjað var á því að skoða hve mikið útflutningur landsins dróst saman við fall WOW air og síðan lagt mat á útflutningsjöfnu fyrir Ísland samkvæmt hagrannsóknarlíkönum til að meta hve lengi áfallið muni vara í útflutningi landsins. Niðurstaðan var síðan notuð til að áætla áhrif á eftirspurn og framleiðslu. Áhrif fallsins og sá samdráttur sem varð í kjölfar þess voru síðan greind á verga landsframleiðslu Íslands. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að til skamms tíma hafði fall WOW air þau efnahagslegu áhrif að landsframleiðsla Íslands dróst saman við fast verðlag en atvinnuleysi landsins jókst við minnkandi verðbólgu og óbreytt gengi gjaldmiðils. Hvað tölulega greiningu varðar má gera ráð fyrir að útflutningur landsins hafi dregist saman um 47.514 milljónir króna við fallið. Þegar búið var að reikna út þau margföldunaráhrif sem mynduðust í kjölfar fallsins bendir allt til þess að verg landsframleiðsla Íslands hafi dregist saman um 85.525 milljónir króna að öðru óbreyttu við fall WOW air árið 2019.","abstract_has_math":false,"creators":["Helga Laufey Hafsteinsdóttir 1996-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2020,"date_issued":"2020-05-13T12:54:52Z","date_published":"2020-05-13T12:54:52Z","updated_at":"2026-07-27T21:42:24Z","subjects":["Hagfræði","Efnahagsmál","Ferðaþjónusta","WOW air"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/35260","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Helga Laufey Hafsteinsdóttir 1996-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2020-05-13T12:54:52Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2020-05-13T12:54:52Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2020-05-13T12:54:52Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Hagfræði","Efnahagsmál","Ferðaþjónusta","WOW air"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/35260"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Mikill uppgangur hefur orðið í ferðaþjónustu Íslands á undanförnum árum og hefur ferðamönnum fjölgað gríðarlega á sama tíma. Ein af ástæðum þess var aukið sætaframboð íslensku flugfélaganna en flugfélagið WOW air er talið hafa átt stóran þátt í þessum aukna ferðamannastraumi til landsins með komu sinni á flugmarkaðinn árið 2011. Síðasta áratuginn hefur ferðaþjónustan orðið stærsta atvinnugrein Íslands og var fall WOW air því áhyggjuefni fyrir efnahag landsins. Félagið var komið með 37% markaðshlutdeild í flugi til og frá Íslandi árið 2018 svo ljóst er að flugfélagið skilur eftir sig stórt skarð á flugmarkaðnum. Markmið þessarar rannsóknar er að leggja mat á áhrif falls WOW air á þjóðarbúið eftir mikinn uppgang í ferðaþjónustu landsins síðustu ár. Við greininguna var að mestu notast við gögn frá Ferðamálastofu, Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands og WOW air. Rannsakandi byrjaði á því að kynna sér sögu WOW air og efnahagsleg umsvif félagsins ásamt því að skoða þróun útflutnings hér á landi undanfarin ár. Rannsakandi kynnti sér síðan þjóðhagfræðilíkön sem notuð voru við greiningu ritgerðarinnar. Þá voru skammtímaáhrif falls WOW air á þjóðarbúið greind ásamt áhrifum líklegra inngripa Seðlabanka Íslands. Næst var lagt mat á tölulega greiningu fallsins. Byrjað var á því að skoða hve mikið útflutningur landsins dróst saman við fall WOW air og síðan lagt mat á útflutningsjöfnu fyrir Ísland samkvæmt hagrannsóknarlíkönum til að meta hve lengi áfallið muni vara í útflutningi landsins. Niðurstaðan var síðan notuð til að áætla áhrif á eftirspurn og framleiðslu. Áhrif fallsins og sá samdráttur sem varð í kjölfar þess voru síðan greind á verga landsframleiðslu Íslands. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að til skamms tíma hafði fall WOW air þau efnahagslegu áhrif að landsframleiðsla Íslands dróst saman við fast verðlag en atvinnuleysi landsins jókst við minnkandi verðbólgu og óbreytt gengi gjaldmiðils. Hvað tölulega greiningu varðar má gera ráð fyrir að útflutningur landsins hafi dregist saman um 47.514 milljónir króna við fallið. Þegar búið var að reikna út þau margföldunaráhrif sem mynduðust í kjölfar fallsins bendir allt til þess að verg landsframleiðsla Íslands hafi dregist saman um 85.525 milljónir króna að öðru óbreyttu við fall WOW air árið 2019."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Fall WOW air: Áhrif falls WOW air á þjóðarbú Íslands"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Helga Laufey Hafsteinsdóttir 1996-"],"dc:date.accessioned":["2020-05-13T12:54:52Z"],"dc:date.available":["2020-05-13T12:54:52Z"],"dc:date.issued":["2020-05-13T12:54:52Z"],"dc:description.abstract":["Mikill uppgangur hefur orðið í ferðaþjónustu Íslands á undanförnum árum og hefur ferðamönnum fjölgað gríðarlega á sama tíma. Ein af ástæðum þess var aukið sætaframboð íslensku flugfélaganna en flugfélagið WOW air er talið hafa átt stóran þátt í þessum aukna ferðamannastraumi til landsins með komu sinni á flugmarkaðinn árið 2011. Síðasta áratuginn hefur ferðaþjónustan orðið stærsta atvinnugrein Íslands og var fall WOW air því áhyggjuefni fyrir efnahag landsins. Félagið var komið með 37% markaðshlutdeild í flugi til og frá Íslandi árið 2018 svo ljóst er að flugfélagið skilur eftir sig stórt skarð á flugmarkaðnum. Markmið þessarar rannsóknar er að leggja mat á áhrif falls WOW air á þjóðarbúið eftir mikinn uppgang í ferðaþjónustu landsins síðustu ár. Við greininguna var að mestu notast við gögn frá Ferðamálastofu, Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands og WOW air. Rannsakandi byrjaði á því að kynna sér sögu WOW air og efnahagsleg umsvif félagsins ásamt því að skoða þróun útflutnings hér á landi undanfarin ár. Rannsakandi kynnti sér síðan þjóðhagfræðilíkön sem notuð voru við greiningu ritgerðarinnar. Þá voru skammtímaáhrif falls WOW air á þjóðarbúið greind ásamt áhrifum líklegra inngripa Seðlabanka Íslands. Næst var lagt mat á tölulega greiningu fallsins. Byrjað var á því að skoða hve mikið útflutningur landsins dróst saman við fall WOW air og síðan lagt mat á útflutningsjöfnu fyrir Ísland samkvæmt hagrannsóknarlíkönum til að meta hve lengi áfallið muni vara í útflutningi landsins. Niðurstaðan var síðan notuð til að áætla áhrif á eftirspurn og framleiðslu. Áhrif fallsins og sá samdráttur sem varð í kjölfar þess voru síðan greind á verga landsframleiðslu Íslands. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að til skamms tíma hafði fall WOW air þau efnahagslegu áhrif að landsframleiðsla Íslands dróst saman við fast verðlag en atvinnuleysi landsins jókst við minnkandi verðbólgu og óbreytt gengi gjaldmiðils. Hvað tölulega greiningu varðar má gera ráð fyrir að útflutningur landsins hafi dregist saman um 47.514 milljónir króna við fallið. Þegar búið var að reikna út þau margföldunaráhrif sem mynduðust í kjölfar fallsins bendir allt til þess að verg landsframleiðsla Íslands hafi dregist saman um 85.525 milljónir króna að öðru óbreyttu við fall WOW air árið 2019."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/35260"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Hagfræði","Efnahagsmál","Ferðaþjónusta","WOW air"],"dc:title":["Fall WOW air: Áhrif falls WOW air á þjóðarbú Íslands"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:42:24Z"}