Back to results

University of Iceland

Flugstarfsemi og rekstrarmódel. Breytingar, fargjöld og reglur

Abstract

dc:description.abstract

Megináherslur þessarar ritgerðar eru á breytingar sem gerðar voru á fargjöldum og reglum um þau hjá Icelandair. Breytingarnar voru tvær. Sú fyrri var í júní árið 2007 og sú síðari í nóvember 2008. Við greiningu og túlkun er sjónarhorn sölumanna tekið og fjallað um fargjöldin og fargjaldareglurnar út frá þeim. Sjónarmið stefnumiðaðrar stjórnunar eru rakin og rætt er um PESTLE -, VRIO - og SVÓT – greiningar. Samkeppnislíkan og virðiskeðja Michael Porter eru tekin til umfjöllunar. Einnig er fjallað almennt um breytingar hjá fyrirtækjum og skoðaðar eru leiðir til að innleiða breytingar og hvernig unt er að láta þær vara til lengri tíma. Tvenns konar rekstrarform flugfélaga eru tekin til umfjöllunar og gerð er tilraun til að staðsetja Icelandair í öðru hvoru þeirra. Helstu niðurstöður greiningarinnar eru þær að breytingar sem voru gerðar á fargjöldum Icelandair árið 2007 voru talsverðar, en breytingar sem voru gerðar rúmu ári síðar voru litlar. Fargjaldareglur breyttust einnig en mun minna við seinni breytingarnar. Fargjöldin eru síðan skoðuð út frá fræðilegu umfjölluninni og möguleikar nýrra fargjalda greindir. Að lokum er rætt almennt um nokkur atriði, þar á meðal álag á starfsmenn og þjálfun þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Guðrún Tómasdóttir 1956-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3445
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3445

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Guðrún Tómasdóttir 1956-. Flugstarfsemi og rekstrarmódel. Breytingar, fargjöld og reglur. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3445