Back to results

University of Iceland

Groundfish species diversity and assemblage structure in Icelandic waters during a period of rapid warming (1996-2007)

Abstract

dc:description.abstract

Hlýnandi loftslag undanfarinna ára hefur valdið breytingum á útbreiðslu fiskitegunda á norðurhveli jarðar. Ólík svörun tegunda við hækkandi hita getur leitt til breytinga á samfélagsgerð og staðbundnum tegundafjölda. Í kjölfar breytinga á sjávarhita hafa verið skráðar breytingar á stofnstærð og útbreiðslu nokkurra fiskitegunda á Íslandsmiðum. Markmið þessarar rannsóknar voru að kanna breytingar á útbreiðslu, fjölbreytileika og samfélagsgerð botnfiska á Íslandsmiðum á hlýnunarskeiði og hvaða umhverfisþættir ráða þeim. Í rannsókninni voru notuð gögn Hafrannsóknastofnunarinnar úr árlegum (1996- 2007) stofnmælingum botnfiska að hausti (október). Í stofnmælingunni eru sömu stöðvar endurteknar ár hvert. Klasagreining (hierarchical cluster analysis) var notuð til að skilgreina samfélög fiska á tveimur tímabilum og fjölþáttagreiningin CCA (canonical correspondence analysis) til að kanna tengsl milli samfélaga og hitastigs, dýpis, breiddar- og lengdargráðu og ára. Einnig voru notaðir tveir fjölbreytileikastuðlar; fjöldi tegunda og Shannon index. Tengsl fjölbreytileika og hitastigs, dýpis, frumframleiðslu, staðsetningar og ára voru könnuð með GAM líkönum (generalized additive models). Fjögur meginsamfélög með útbreiðslu í suðvestur-djúpi, norður-djúpi, suður landgrunni og með víða útbreiðslu á landgrunni voru greind með klasagreiningu. Samfélög í köldum sjó djúpt norður af landinu voru óbreytt á rannsóknartímanum, en samfélagsgerð tegunda í breytilegri hlýsjó yfir landgrunninu sýndu meiri breytingar á sama tímabili. Fjölþáttagreining sýndi líka fram á aukið vægi hlýsjávartegunda á þessu hlýnunarskeiði. Í ljós kom að fjölbreytileiki var mismunandi eftir árum og staðsetningu, auk þess sem hann breyttist með dýpi og hitastigi. Tegundafjöldi jókst með hitastigi og tíma suður og vestur af landinu, en minnkaði fyrir norðan og austan land. Á sumum svæðum þar sem fjöldi tegunda var mikill var Shannon index lágur. Þetta gefur til kynna að þrátt fyrir að margar tegundir séu á þessum svæðum, þá er einstaklingsfjöldi flestra þeirra lítill.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Stefánsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3436
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3436

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Stefánsdóttir 1982-. Groundfish species diversity and assemblage structure in Icelandic waters during a period of rapid warming (1996-2007). 2008. http://hdl.handle.net/1946/3436