Back to results

University of Iceland

Þjálfun afreksíþróttakvenna á meðgöngu

Abstract

dc:description.abstract

Mikið hefur verið skrifað um hreyfingu á meðgöngu en miðar flest að því sem hefur verið rannsakað við konur sem hreyfa sig um 30-60 mín á dag, 3-4 sinnum í viku. Mjög lítið hefur verið skrifað um hreyfingu á meðgöngu fyrir keppnisíþróttakonur, (e. elite athletes eða highly trained athletes) eða þær konur sem vanar eru að æfa oftar og undir miklu álagi. Það virðist vera skortur á leiðbeiningum um hreyfingu á meðgöngu fyrir þennan hóp. Það getur því verið mikil áskorun fyrir heilbrigðisstarfsfólk að veita þessum hópi kvenna ráðleggingar um þjálfun á meðgöngu. Í þessari fræðilegu samantekt er leitast við að svara tveimur rannsóknarspurningum: 1) Hversu mikið mega konur sem eru í góðri þjálfun og vanar miklu álagi, æfa á meðgöngu án þess að stefna fóstrinu í hættu? 2) Hvaða áhrif hefur mikil þjálfun á meðgöngu á konuna annars vegar og fóstrið hins vegar? Aðferðir: Leitað var í gagnagrunnum Pubmed, Web of Science, GoogleScholar, og Proquest. Leitarorðin voru: pregnancy, pregnant, elite athletes, highly trained, exercise, fetus. Miðað var við 25 ára tímabil eða frá árunum 1994-2019. Mikið fannst af greinum varðandi hreyfingu á meðgöngu almennt, erfiðara var að finna sérstaklega um afreksíþróttakonur og var því einnig notuð snjóboltaaðferð við öflun heimilda. Það virðist vera að þær konur sem voru að æfa mikið áður en þær urðu þungðaðar geta haldið því áfram á meðgöngu, án þess að setja líf ófædda barnsins í hættu, svo lengi sem meðgangan er eðlileg. Flestar rannsóknir sem hafa skoðað áhrif mikillar æfingarákefðar á fóstur benda til að álag upp að 90% af hámarksálagi sé óhætt fyrir bæði móður og barn og hafi jákvæð áhrif á móður og barn. Engar rannsóknir fundust sem sýndu að hátt æfinga- magn og ákefð á meðgöngu hefðu neikvæð áhrif á móður eða fóstur. Leitarorð: pregnancy, pregnant ,elite athletes, highly trained, exercise, fetus

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingunn Lúðvíksdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33559
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33559

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingunn Lúðvíksdóttir 1977-. Þjálfun afreksíþróttakvenna á meðgöngu. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33559