Back to results

University of Iceland

Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar þýðingar Creatures of Habit Scale og Habit Index of Negative Thinking

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna próffræðilega eiginleika sjálfsmatskvarðanna Habit Index of Negative Thinking og Creatures of Habit Scale í íslenskri þýðingu. Báðir kvarðanir mæla vanabundna eiginleika, sá fyrri metur vanabundnar neikvæðar sjálfshugsanir og hinn síðari vanabundna eiginleika daglegra athafna sem einkennast af rútínu og sjálfvirkni. Eins var athugað hvort vanabundnir eiginleikar veiti forspá um kvíða- og þunglyndiseinkenni umfram neikvætt innihald hugsana. Alls 340 háskólanemar tóku þátt, 241 konur, 95 karlar og fjórir sem tilgreindu ekki kyn sitt. Meðalaldur úrtaksins var 22,8 ár. Þátttakendur svöruðu sjö sjálfsmatskvörðum í heimsókn til rannsakenda. Þáttagreining gaf til kynna að Creatures of Habit Scale skiptist í tvo undirþætti sem einkennast af rútínu og sjálfvirkni og áreiðanleiki þáttanna var viðunandi. Þáttagreining á Habit Index of Negative Thinking studdi eins þátta líkan sem endurspeglar vanabundnar neikvæðar sjálfshugsanir. Áreiðanleiki þáttarins var mjög góður. Sjálfsmatskvarðanir hafa viðunandi próffræðilega eiginleika til notkunar í íslensku þýði. Niðurstöður sýndu að vanabundnar neikvæðar sjálfshugsanir veita forspá um kvíða- og þunglyndiseinkenni umfram neikvætt innihald hugsana en rútína og sjálfvirkni höfðu ekki slík áhrif. Það bendir til þess að það að hve miklu leyti neikvæðar hugsanir eru vanabundnar hefur áhrif á skaðlega framvindu umfram neikvætt innihald þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Bergrún Mist Jóhannesdóttir 1993-
  • Snæbjört Sif Jóhannesdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33441
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33441

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bergrún Mist Jóhannesdóttir 1993-; Snæbjört Sif Jóhannesdóttir 1995-. Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar þýðingar Creatures of Habit Scale og Habit Index of Negative Thinking. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33441