Back to results

University of Iceland

Hverjar eru helstu hvatir til rafræns umtals?: Eru hvatir til rafræns umtals einsleitar?

Abstract

dc:description.abstract

Umtalsmarkaðssetning í gegnum netið hefur verið heillandi kostur fyrir markaðsfólk þar sem hún er talin vinna á mótþróa fólks gegn auglýsingum með minni tilkostnaði og auðveldari birtingu heldur aðrir markaðsráðar. Rannsóknir hafa einnig sýnt að tiltrú fólks á auglýsingum fer minnkandi. Færra fólk telur auglýsingar vera góða leið til að læra um vörur, færra fólk segist kaupa vörur útaf auglýsingum og færra fólk segist því finnast auglýsingar skemmtilegar. Þar sem skilaboð sem koma í gegnum samskipti milli fólks með persónuleg tengsl sín á milli eru talin áreiðanlegri heldur en auglýsingar og annað markaðsefni, er rafrænt umtal oftar en ekki betra en hefðbundnar auglýsingar til þess að hafa áhrif á viðhorf og kauphegðun fólks. En afhverju tjáir fólk sig á netinu? Hvaða hvatir eru til rafræns umtals og er munur á þessum hvötum eftir fólki? Þessari rannsókn var ætlað að svara fjórum rannsóknarspurningum; 1. Tilgáta 1: Munur er á hvötum til rafræns umtals eftir því hvaða miðla fólk notar. 2. Tilgáta 2: Munur er á hvötum til rafræns umtals eftir því hvernig fólk skilgreinir kyn sitt. 3. Tilgáta 3: Munur er á hvötum til rafræns umtals eftir því hver aldur fólks er. 4. Tilgáta 4: Munur er á hvötum til rafræns umtals eftir því hvaða menntun fólk hefur. Munur fannst á öllum tilgátum og því var hægt að staðfesta þær allar. Þetta gefur til kynna að hvatir til rafræns umtals eru ekki einsleitar. Það bera að hafa í huga þegar á að nýta sér rafrænt umtal í miðaðri markaðssetningu og nauðsynlegt er að sníða notkun á rafrænu umtali að hverjum hópi fyrir sig.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vigfús Fannar Rúnarsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33008
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33008

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vigfús Fannar Rúnarsson 1989-. Hverjar eru helstu hvatir til rafræns umtals?: Eru hvatir til rafræns umtals einsleitar?. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33008