University of Iceland
Viltu peninga eða hrós?: Rannsókn á áhrifum hvata og persónuleika á starfsánægju starfsfólks í framlínuþjónustu Reykjavíkurborgar.
Abstract
dc:description.abstractÍ rannsókn þessari var starfsánægja starfsfólks í framlínuþjónustu hjá þjónustuveri og þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar mæld. Auk þess var skoðað hvort hefðu meira vægi gagnvart starfsánægju, ytri eða innri hvatar. Að síðustu var lagður fyrir spurningalisti í tengslum við fimm þátta líkan sem greinir mismunandi persónuleika og leitast við að finna tengsl þeirra við starfsánægju. Þátttakendur voru 26, 23 konur og 3 karlar. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og lagðir fram spurningalistar, annars vegar könnun í tengslum við starfsánægju og hins vegar könnun í tengslum við persónuleika. Rannsóknin leiddi í ljós að starfsánægja mældist 143 stig að meðaltali hjá þátttakendum. Það flokkast undir stöðu sem þyrfti að vinna í og er rétt undir því sem telst ásættanlegt. Að sama skapi benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að innri hvatar vegi talsvert meira í stigagjöf varðandi starfsánægju en ytri hvatar. Ekki var um marktæka niðurstöðu að ræða varðandi tengsl persónuleika og starfsánægju.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Valdimar Þór Svavarsson 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32906
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32906