Back to results

University of Iceland

Áhættuþættir áverka á fremra krossbandi og hugleiðingar um hvernig áverkinn gerist

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um megin áhættuþætti meiðsla eða slits á fremra krossbandi í hné og líkurnar á að hljóta slíkan skaða. Slit á fremra krossbandi eru algeng meiðsl í íþróttum, ekki síst á meðal kvenna. Almennum áhættuþáttum er skipt niður í þætti í umhverfinu annars vegar og þætti innan líkamans hins vegar, en þeir eru líffærafræðilegir þættir, hormónar og hreyfistjórn. Hægt er að tengja þessa þætti síðan við kyn, aldur, þyngd, fjölskyldusögu, líkamsgerð, vöðvastyrk, samhæfingu og þreytu, á meðan þættir í umhverfinu taka til leikvallar, tegundar gólfs, viðnáms og skóbúnaðar ásamt krafna um hreyfistjórn með tilliti til umhverfisins í margbreytilegu umhverfi þar sem þarf að taka eftir og bregðast við hreyfingum annarra eins og í kappleik og bregðast við þeim á réttan hátt. Að auki er stutt umræða um algengustu aðstæðurnar sem geta leitt til meiðsla á fremri krossböndum og hvernig áverkinn gerist. Niðurstaða þessarar heimildaritgerðar er að það eru margir þættir, bæði innan og utan líkamans sem geta verið áhættuþættir fyrir meiðsl á fremra krossbandi en líklegast er um flókið samspil samverkandi þætta um að ræða í flestum meiðslunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helgi Steinar Andrésson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3289
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3289

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helgi Steinar Andrésson 1981-. Áhættuþættir áverka á fremra krossbandi og hugleiðingar um hvernig áverkinn gerist. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3289