Back to results

University of Iceland

„Þetta er réttlætistæki“: Um jafnréttismat á viðaukum við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2015 - 2019

Abstract

dc:description.abstract

Reykjavíkurborg hefur stigið það skref í þágu jafnréttis að innleiða mat á jafnréttisáhrifum vegna viðauka við fjárhagsáætlun borgarinnar. Jafnréttismat er aðferð sem beitt er við undirbúning og vinnu áður en ákvarðanir um viðauka eru teknar. Matið er notað til að varpa ljósi á hugsanleg áhrif sem ákvarðanir koma til með að hafa á ólíka hópa og velja þá leið sem stuðlar að auknu jafnrétti. Markmiðið með innleiðingunni er að færa íbúa Reykjavíkur nær því að búa við raunverulegt jafnrétti. Þess vegna er afar mikilvægt að rannsaka stöðu framkvæmdarinnar. Yfirgrípandi rannsóknarspurning þessarar ritgerðar er: „Hver er staðan á framkvæmd jafnréttismats hjá Reykjavíkurborg vegna viðauka á fjárhagsáætlun 2015-2019?" Í umfjölluninni er sérstaklega stuðst við fræðilega umfjöllun um stöðu kvenna og karla auk þess sem fjallað er um mikilvægi samtvinnunar (e. intersectionality) til að vinna að jafnrétti á víðtækari grundvelli. Niðurstöður rannsóknarinnar byggja á greiningu fyrirliggjandi gagna sem Reykjavíkurborg lagði til en einnig á greiningu eigindlegra viðtala við ábyrgðaraðila í innleiðingarferlinu. Helstu niðurstöður benda til þess að jafnréttismatið hafi ekki verið framkvæmt að neinu marki frá árinu 2015. Jafnréttisskimun, sem er einfaldara grunnmat á jafnréttisáhrifum var innleidd árið 2018 og var framkvæmd á stórum hluta viðaukatillagna það ár. Jafnréttisskimunin á að vera undanfari jafnréttismatsins í ferlinu þegar mat er lagt á jafnréttisáhrif viðauka. Síðan skimunin var tekin upp hefur aldrei verið talin þörf á að framkvæmda dýpra jafnréttismat í kjölfarið. Tíminn mun þó leiða í ljós hvort jafnréttismatinu verði beitt í auknum mæli en sterk rök mæla með því. Niðurstöður benda til þess að margvíslegar hindranir hafi valdið því að framkvæmd jafnréttismats datt niður á tímabilinu 2016-2018 en þær hindranir eru að einhverju leyti enn til staðar. Þá er óljóst að hve miklu leyti kjörnir fulltrúar horfi á niðurstöður jafnréttisskimunar og jafnréttismats við ákvarðanatöku. Byggt á niðurstöðum úttektarinnar eru lagðar til ýmsar úrbætur sem gætu stutt Reykjavíkurborg við framkvæmd mats á jafnréttisáhrifum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrefna Hallgrímsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32076
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32076

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrefna Hallgrímsdóttir 1989-. „Þetta er réttlætistæki“: Um jafnréttismat á viðaukum við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2015 - 2019. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32076