Back to results

University of Iceland

Fæðingarorlof feðra: Orlofsnýting og áhrif

Abstract

dc:description.abstract

Íslenskir feður öðluðust sinn sjálfstæða rétt til fæðingarorlofs með tilkomu laga um fæðingar- og foreldraorlof (nr. 95/2000). Sjálfstæður réttur feðra átti fyrst og fremst að hvetja þá til aukinnar þátttöku í umönnun barna. Feður hafa verið að nýta fæðingarorlof í mun minna máli en mæður og hefur dregið úr orlofstöku þeirra frá árinu 2008. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða þættir hafa áhrif á orlofsnýtingu feðra og hvaða ástæður eru fyrir því að sumir feður fullnýta ekki fæðingarorlofsrétt sinn. Rannsóknarspurningarnar sem leitað svara var við voru; Hvað einkennir þá feður sem taka fæðingarorlof og þá sem gera það ekki? Hvað veldur því að sumir feður nýta ekki orlofsrétt sinn til fulls? Einnig voru lagðar fram tvær tilgátur; því hærri sem mánaðartekjur feðra eru, því ólíklegri eru þeir til að fullnýta sinn sjálfstæða rétt til fæðingarorlofs og feður með eigin rekstur eru ólíklegri til að nýta sjálfstæðan rétt sinn til fæðingarorlofs. Við vinnslu rannsóknarinnar var beitt megindlegum aðferðum sem unnar voru úr fyrirliggjandi gögnum rannsóknar Guðnýjar Bjarkar Eydal og Ingólfs V. Gíslasonar sem nefnist Atvinnuþátttaka foreldra og umönnun barna við þriggja ára aldur. Í þessari rannsókn var stuðst við gögn feðra sem voru í sambúð eða hjónabandi með móður við framkvæmd rannsóknarinnar. Niðurstöður sýna fram á að rúmlega helmingur feðra nýtir ekki orlofsrétt sinn til fulls eða tekur ekkert fæðingarorlof. Einnig að helstu ástæður þess tengdust tekjum feðra. Margir hverjir ná upp í þakið á greiðslum Fæðingarorlofssjóðs og telja þeir sig því ekki hafa tök á fæðingarorlofi. Af því gefnu eru mörg íslensk heimili sem verða fyrir þónokkurri tekjuskerðingu þegar kemur að fæðingarorlofi sem bitnar á samvistum foreldra og barna. Lykilorð: Fæðingarorlof, feður, sjálfstæður réttur, orlofsnýting, áhrif

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karlotta Jóhannsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31986
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31986

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karlotta Jóhannsdóttir 1991-. Fæðingarorlof feðra: Orlofsnýting og áhrif. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31986