Abstract
dc:description.abstractÞessi ritgerð fjallar um fólk með þroskahömlun í íslenskum fangelsum og hvort að það eigi í raun að afplána sinn dóm þar. Ritgerðin var unnin sem heimildaritgerð og notast var við heimildir sem fram hafa komið í fjölmiðlum. Sagt er frá fjórum dæmum fólks með þroskahömlun sem sitið hafa í fangelsi til að afplána sinn dóm, en í einu dæminu braut maðurinn ekki af sér heldur var hann vistaður í kvennafangelsi sem búsetuúrræði. Þessi málefni eru gríðarlega mikilvæg og sýna fram á að fólk með þroskahömlun ætti að hafa rétt á stuðning í fangelsum ef það þarf að afplána sinn dóm þar. Sakhæfi var skoðað ásamt lögum um réttindi fatlaðs fólks og hvaða réttindi fólk með fötlun hefur í réttarkerfinu. Lítið hefur verið fjallað um málefni fólks með þroskahömlun sem afplána dóm í fangelsum hérlendis og hafa engar rannsóknir verið gerðar á því hversu margir á Íslandi með þroskahömlun hafa afplánað dóm í fangelsum. Stuðst var við erlendar rannsóknir til að sjá hversu margir fangar með þroskahömlun afplána dóma í fangelsum og hvort til séu próf sem fólk sem vinnur í réttindargæslu getur stuðst við. Einnig var skoðað hvers konar stuðning hægt sé að veita fólki með þroskahömlun sem apflánar dóm í fangelsi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Árný Rún Helgadóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31489
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31489