University of Iceland
Langtímaáhrif magahjáveituaðgerða á beinabúskap karla og kvenna, 3 ára eftirfylgni
Abstract
dc:description.abstractInngangur: Um leið og algengi offitu eykst hefur sömuleiðis hjáveituaðgerðum til meðferðar á offitu fjölgað. Góður árangur hefur fengist með hjáveituaðgerðum sem meðferð gegn offitu þar sem þyngdartap er mikið hjá einstaklingum en til eru vísbendingar um töluvert beintap fyrstu tvö árin eftir aðgerð. Þessi rannsókn er liður í að varpa ljósi á langtímaáhrif magahjáveituaðgerða á beinabúskap bæði hjá körlum og konum eftir slíkar aðgerðir. Markmið: Kanna langtímaáhrif verulegs þyngdartaps og truflaðrar næringarupptöku hjá einstaklingum með offitu eftir hjáveituaðgerð á maga og görnum á beinaheilsu að teknu tilliti til kalk og D-vítamín búskapar. Efni og aðferðir: Rannsóknin var unnin úr gögnum sem þegar lágu fyrir um langtímaáhrif magahjáveitu á beinabúskap. Öllum þeim sem luku undirbúningsmeðferð á Reykjalundi og fóru í Roux-en-Y hjáveituaðgerð á tímabilinu desember 2010 til október 2012 var boðin þátttaka í rannsókninni. Þátttakendur fóru í blóðprufur og voru hæðar- og þyngdarmældir ásamt því að fara í beinþéttnimælingu fyrir aðgerð. Mælingar voru svo endurteknar 12- 24- og 36 mánuðum eftir aðgerð. 70 þátttakendur tóku þátt í rannsókninni, 11 karlar og 59 konur á aldrinum 24-63 ára. Alls áttu 33 þátttakendur beinþéttnimælingar frá öllum tímapunktum og 45 áttu blóðmælingar frá öllum tímapunktum. Niðurstöður: Marktækt tap varð á beinþéttni á öllum mælisvæðum hjá báðum kynjum. Frá grunnmælingu að 36 mánaða mælingu var mesta beintapið í lærleggshnútu (15,2%) hjá báðum kynjum og á tímabilinu 12 mánaða að 36 mánaða mælingu var mesta beintapið einnig í lærleggshnútu (7,0%). Hjá konum var mesta beintapið í lærleggshnútu á báðum tímabilum (15,4% vs. 6,9%). Hjá körlum var mesta beintapið í lærleggshnútu (14,6%) frá grunnmælingu að 36 mánaða mælingu en mesta beintapið frá 12 að 36 mánaða mælingu var í Ward’s triangle (8,8%). Frá grunnmælingu að 36 mánaða mælingu var marktæk jákvæð fylgni á milli hlutfallslegrar þyngdarbreytingar og breytinga á BMD í lærhnútu hjá körlum. Frá 12 að 36 mánaða mælingu var marktæk jákvæð fylgni á milli þyngdarbreytinga og breytinga á BMD í heildarmjöðm hjá körlum. Þeir sem léttust mest töpuðu einnig mestu BMD. Aðrir fylgnistuðlar voru ekki tölfræðilega marktækir. Hlutfallsleg breyting á D-vítamíni hjá konum var 122,9% hækkun og 43,0% hækkun á PTH gildi frá grunnmælingu að 36 mánaða mælingu. Um 19,1% hækkun á D-vítamíni og 26,6% hækkun á PTH gildi frá 12 að 36 mánaða mælingu. Hjá körlum var marktæk hækkunin í D-vítamíni eða um 377,3% frá grunnmælingu að 36 mánaða mælingu en frá 12 að 36 mánaða mælingu varð marktæk hækkun á D-vítamíni um 40,6%. Fylgni blóðprufa og beinþéttnitaps var oftast neikvæð og var hún þá sérstaklega há hjá körlum í D-vítamíni. Hækkandi PTH var marktækt fylgjandi auknu beintapi hjá konum í lærleggshálsi, Ward’s triangle og hrygg. Ályktanir: Beintapið hjá einstaklingum sem gangast undir magahjáveituaðgerðir er mest fyrsta árið en heldur áfram eftir það þrátt fyrir að þyngdartap hætti. Orsök þessa virðist ekki vera skortur á D-vítamíni eða kalki og tengsl hækkaðs PTH við aukið beintap hjá konum og virðast því eiga sér aðrar óþekktar skýringar. Mikilvægt er að fylgjast með beinheilsu einstaklinga eftir magahjáveituaðgerðir ásamt því að fara reglulega í blóðprufumælingar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna Sigurðardóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/30617
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/30617