University of Iceland
Skráning á aukaverkunum hjá börnum sem eru í lyfjameðferð vegna bráðs eitilfrumuhvítblæðis. Tillögur að úrbótum
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Bráða eitilfrumuhvítblæði (ALL) er algengasti illkynja sjúkdómurinn hjá börnum. Eina leiðin til að lækna hann er hörð lyfjameðferð og henni geta fylgt miklar aukaverkanir. Mikilvægt er að hjúkrunarskráning sé rétt og nákvæm til þess að tryggja öryggi og gæði hjúkrunar. Tilgangur: Draga fram helstu aukaverkanir af lyfjameðferð við ALL og skoða skráningu þeirra á Barnadeild Barnaspítala Hringsins. Skoða hvort megi bæta verklag við skráningu aukaverkana og einkenna þeirra. Aðferð: Heimildaleit fór fram í rafrænum gagnagrunnum Hirsla, Pubmed og Scopus, í bókum sem tengjast viðfangsefninu og heimasíðum National Cancer Institute og Krabbameinsskrá Íslands. Auk þess var notast við samnorræn lyfjafyrirmæli fyrir börn í meðferð við ALL. Einnig voru tekin viðtöl við hjúkrunarfræðinga sem starfa á Barnadeild Barnaspítala Hringsins. Niðurstöður: Algengustu aukaverkanir lyfjameðferðar ALL eru ógleði, verkir, beinmergsbæling, munnslímhúðarbólga og hægðatregða. Þessum aukaverkunum fylgja oft einkenni sem eru erfið viðureignar og gjarnan fylgja lík einkenni ólíkum aukaverkunum. Hjúkrunarfræðingar Barnadeildar könnuðust við þessar aukaverkanir og töluðu um hvernig þeir mátu og skráðu þessar aukaverkanir. Ekki var algert samræmi á milli hjúkrunarfræðinga hvernig þeir skráðu hjúkrun hjá þessum börnum. Ályktun: Samræma mætti betur skráningar á Barnadeild Barnaspítala Hringsins svo hægt væri að nálgast gögn úr sjúkraskrám með auðveldum hætti. Einnig mætti skoða innleiðingu á skráningarblaði og á matskvörðum til þess að auðvelda skráningu og gera hana samhæfðari. Til þess að bæta skráningu enn frekar væri vert að kanna möguleikann á kennslu á sögukerfi Landspítalans. Jafnvel mætti endurtaka þá kennslu þegar koma nýjar uppfærslur og þegar hjúkrunarfræðingur hefur starfað í ákveðinn tíma, honum til upprifjunar. Lykilorð: Bráða eitilfrumuhvítblæði, hjúkrunarskráning, aukaverkanir, lyfjameðferð, börn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Kristín Hálfdánardóttir 1994-
- Hafdís Ósk Baldursdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/30516
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/30516