Back to results

University of Iceland

Hagsveiflan sem endaði ekki illa: Þróun hagvaxtar og helstu hagþátta síðan árið 2010

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að greina núverandi hagsveiflu og skoða þróun helstu hagþátta með sérstöku tilliti til einkaneyslu. Frá árinu 2010 hefur verið mikil uppsveifla í efnahag Íslands. Lán hafa verið greidd niður og endurfjármögnuð á betri kjörum. Hrein erlend þjóðarstaða varð nýlega jákvæð í fyrsta sinn síðan mælingar hófust og ekki er talin ástæða til að efla gjaldeyrisforðann meira. Aukning einkaneyslu er svipuð og í síðustu uppsveiflu og hefur verið drifkraftur í hagvexti. Gjaldeyristekjur vega á móti vöruviðskiptahallanum og núverandi uppsveifla er ekki byggð á auknum skuldum. Ríkisstjórnin virðist ekki ætla stemma stigu við þenslu sem ætti þó að vera í lagi ef útgjaldaaukningu er ráðstafað í arðbærar fjárfestingar. Hugsanlega mætti marka skýrari stefnu við beitingu þjóðhagsvarúðartækja við aðhald á íbúðaverðsþróun. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur áhættu vera að aukast og að heimurinn sé orðinn samstilltari. Ísland er næmt fyrir smitáhrifum og niðursveiflan mun að öllum líkindum koma. Hlutverk hagstjórnenda er því að koma í veg fyrir að hún valdi alvarlegum afleiðingum. Staða Íslands er sterk núna en umhugsunarefni er hvort slaka eigi á reglum og fá tímabundið öflugra efnahagslíf sem gæti þá kostað alvarlegri niðursveiflu seinna. Með langtímahugsun er hægt að stuðla að því að hagsveiflan endi ekki illa.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30347
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30347

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 1995-. Hagsveiflan sem endaði ekki illa: Þróun hagvaxtar og helstu hagþátta síðan árið 2010. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30347