Back to results

University of Iceland

Aukning umfangs og fjármagns í íslenskum körfuknattleik

Abstract

dc:description.abstract

Körfuknattleikur hefur verið spilaður skipulega á Íslandi frá árinu 1951 þegar úrvalsdeildar karla var stofnuð. Íþróttin hefur breyst talsvert á þessum 67 árum og ber þá helst að nefna aukið fjármagn sem lagt er í körfuknattleiksdeildir landsins. Í ritgerðinni er að finna ítarlega umfjöllun um breytt umfang fjármagns í úrvalsdeild karla og hvernig sú breyting hefur áhrif á íþróttina í heild sinni. Þó að íþróttin sem slík hafi verið vinsæl hjá landsmönnum í mörg ár hefur áhuginn nýlega aukist talsvert. Helst er að þakka stóraukinni umfjöllun og umtali frá fjölmiðlum sem og frábærum árangri karlalandsliðs Íslands í körfuknattleik. Hér verður skoðað hvaða áhrif aukning á umfjöllun hefur haft á úrvalsdeildina í heild sinni sem og áhrifin á körfuknattleiksdeildir íþróttafélaganna. Við tölulegar greiningar verður aðallega stuðst við ársreikninga þriggja félaga sem eiga það sameiginlegt að hafa verið með meistaraflokk sinn í úrvalsdeildinni síðustu þrjú ár. Í ritgerðinni verður fjallað um breytingar á tekjum og gjöldum félaganna og farið er yfir hvernig þessi aukna velta kemur til. Á sama tíma eru teknar saman tölur yfir fjölda iðkenda og greint hvaða áhrif aukin umfjöllun og góður árangur íslenska landsliðsins hefur haft á þær. Einnig verður farið yfir hvaðan tekjur félaganna koma og í hvað þær eru notaðar og auk þess skoðuð fylgni árangurs liðanna í úrvalsdeildinni í við aukningu í rekstrartekjum félaganna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Matthías Orri Sigurðarson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30284
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30284

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Matthías Orri Sigurðarson 1994-. Aukning umfangs og fjármagns í íslenskum körfuknattleik. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30284