Back to results

University of Iceland

Metamóderníski hljóðsmalinn: Vægi tónlistar í verkum Ragnars Kjartanssonar

Abstract

dc:description.abstract

'Metamóderníski hljóðsmalinn: Vægi tónlistar í verkum Ragnars Kjartanssonar' er BA ritgerð í listfræði. Kveikjan að henni var áhugi höfundar á myndlistarmönnum sem vinna með tónlist. Ragnar Kjartansson er þekktur íslenskur listamaður sem hefur glæstan tónlistarferil að baki hérlendis. Ennfremur hefur hann haslað sér völl sem myndlistarmaður, ekki síst erlendis á síðstliðnum áratug. Hann hefur hlotið mikla umfjöllun í samræmi við það og rýnt hefur verið í listsköpun hans. Oft er vísað til tenglsa hans við leikhúsið, sem vel á rétt á sér sökum þess að foreldrar hans eru báðir leikarar. Sjaldnar er þó talað um hlutverk tónlistar í lífi hans og því fannst höfundið kjörið að skrifa um hann á þeim nótum. Með því að rýna í listsköpun Ragnars og samband hans við tónlist með metamóderníska hugmyndafræði (sem færa má rök fyrir að hafi tekið við af póstmódernisma) og hljóðsmal (e. sampling) í huga sýnir ritgerð þessi fram á þá alsherjar samþættingu mynd- og tónlistar sem ferill Ragnars er. Hans helstu hugðarefni sem myndlistarmaður er að koma á framfæri tilfinningum sem hann kýs að tjá með hjálp tónlistarflutnings, hljóðfæraleiks, tónlistarmanna og hugmyndum þeirra. Ragnar er listamaður sem bæði á að taka alvarlega og ekki. Hann er gott dæmi um metamódernískann listamann sem vill láta í sér heyra en er meðvitaður um eigin galla (og mannkyns). Gjörninga- og myndbandsverkin hans Satan is Real (2004), Schumann Machine (2008), The Visitors (2012) og A Lot of Sorrow (2013-2014) eru rýnd í þessari ritgerð. Þar kallar Ragnar Kjartansson fram í huganum endurskoðun á gjörningalistaforminu og tónlistarflutningi yfir höfuð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alexander Jean Edvard Le Sage de Fontenay 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30281
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30281

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alexander Jean Edvard Le Sage de Fontenay 1991-. Metamóderníski hljóðsmalinn: Vægi tónlistar í verkum Ragnars Kjartanssonar. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30281