Back to results

University of Iceland

Sálræn líðan samkynhneigðra ungmenna

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur verkefnisins sem er í formi fræðilegrar samantektar var að kanna hvort samkynhneigð ungmenni byggju við ólíka sálræna líðan en önnur ungmenni og ljósi varpað frekar á þrjá megin þætti hvað það varðar, þunglyndi, kvíða og sjálfsvígshugsanir/tilraunir. Niðurstöður rannsókna sem skoðaðar voru sýndu að sálræn líðan samkynhneigðra ungmenna eru marktækt verri en gagnkynhneigðra. Þrátt fyrir að lagaleg staða samkynhneigðra og umburðarlyndi almennings sé óvíða betri en á Íslandi bentu þær fáu íslensku rannsóknir sem fundust um málaflokkinn til þess að sálræn líðan íslenskra ungmenna sé langt frá því að vera nægilega góðar. Dregnar voru þær ályktanir að samkynhneigð ungmenni séu í sérstakri hættu á að þróa með sér sálræna vanlíðan og þarfnast því sérstakrar athygli hjúkrunarfræðinga og annarra sem vinna með ungmennum. Huga þarf að fyrirbyggjandi aðgerðum með opinskárri umræðu og fræðslu til handa hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki, en ekki hvað síst meðal nemenda á öllum skólastigum. Lykilorð: Samkynhneigð, ungmenni, sálræn líðan, hjúkrun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elfa Rún Árnadóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3022
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3022

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elfa Rún Árnadóttir 1979-. Sálræn líðan samkynhneigðra ungmenna. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3022