Back to results

University of Iceland

Hvað er Tilfinningamiðuð Meðferð? Sýnir hún árangur?

Abstract

dc:description.abstract

Leitast er við að gera skýra grein fyrir hvað felst í tilfinningamiðaðri meðferð (TMM), bakgrunni, kenningu og skipulagi og hvort hún sýni árangur. TMM er aðferð er sameinar hið atferlislega, hugræna og tilfinningalega og kallast því samþætt aðferð (integrative approach). Áhersla er lögð á úrvinnslu tilfinninga til að ná viðvarandi bata frá sálmeinum. Talið er að aðeins sé hægt að breyta tilfinningu með tilfinningu (change emotion with emotion). Litið er á meðferðina sem tilfinningaþjálfun (emotion coaching), þar sem meðferðaraðili er bæði fylgjandi (following) og leiðandi (leading) og meðferðaraðili og skjólstæðingur vinna saman að árangri. Tilfinningaþjálfunin fer fram í átta þrepum, þar sem byrjað er að viðurkenna tilfinningarnar í stað þess að hafna þeim. Tilfinningum er skipt í frumtilfinningar (primary emotions), sem eru fyrstu viðbrögð okkar við aðstæðum og afleiddar tilfinningar (secondary emotions), sem eru vörn okkar gegn frumtilfinningum. Til að hægt sé að vinna með tilfinningar er talið nauðsynlegt að öðlast aðgang að frumtilfinningum, sem er markmið tilfinningaþjálfunar. Frumtilfinningum er skipt í tilfinningar er stuðla að aðlögun (adaptive emotions) og tilfinningar er hindra aðlögun (maladaptive emotions). Unnið er áfram með tilfinningar er stuðla að aðlögun, en breyta þarf tilfinningum er hindra aðlögun. Kjarni tilfinningaþjálfunar er að bera kennsl á frumtilfinningar, meta hvort þær eru heilbrigðar eða skaðlegar og breyta skaðlegum tilfinningum með því að öðlast aðgang að nýjum, heilbrigðum tilfinningum og setja þær í staðinn fyrir skaðlegar tilfinningar. Rannsóknir benda til að TMM sýni árangur, ýmist umfram eða til jafns við aðrar aðferðir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Kristinsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3019
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3019

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Kristinsdóttir 1981-. Hvað er Tilfinningamiðuð Meðferð? Sýnir hún árangur?. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3019