Back to results

University of Iceland

Ósýnilegu þolendur Alzheimersjúkdómsins: Aðstandendur, umönnun og stuðningur

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari BA ritgerð verður fjallað um heilabilunarsjúkdóminn Alzheimer og áhrif hans á einstaklinginn og nánustu aðstandendur. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á áhrif sjúkdómsins á andlega og líkamlega heilsu maka einstaklingsins, ásamt mikilvægi þjónustuúrræða fyrir bæði einstaklinginn og maka hans. Til að ná settu markmiði er leitast við að svara eftirfarandi ritgerðarspurningum: Hvaða áhrif hefur sjúkdómurinn á nánustu aðstandendur einstaklings sem þjáist af Alzheimer? Hvaða þjónusta er í boði fyrir einstaklinginn og maka hans? Hvað mætti betur fara? Maki getur upplifað ákveðið hjálparleysi eftir greiningu á Alzheimer. Um er að ræða ólæknandi sjúkdóm og framhaldið er því mjög óljóst. Helstu niðurstöður verkefnisins eru að betur mætti huga að andlegri heilsu í stuðningi við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra. Einnig sýna niðurstöður fram á mikilvægi samskipta á milli stuðningsneta einstaklingsins. Með því að vinna með aðstandendum er hægt að bæta gæði þjónustu til einstaklingsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karen Birna Ómarsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30171
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30171

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karen Birna Ómarsdóttir 1994-. Ósýnilegu þolendur Alzheimersjúkdómsins: Aðstandendur, umönnun og stuðningur. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30171