University of Iceland
Ósýnilegu þolendur Alzheimersjúkdómsins: Aðstandendur, umönnun og stuðningur
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari BA ritgerð verður fjallað um heilabilunarsjúkdóminn Alzheimer og áhrif hans á einstaklinginn og nánustu aðstandendur. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á áhrif sjúkdómsins á andlega og líkamlega heilsu maka einstaklingsins, ásamt mikilvægi þjónustuúrræða fyrir bæði einstaklinginn og maka hans. Til að ná settu markmiði er leitast við að svara eftirfarandi ritgerðarspurningum: Hvaða áhrif hefur sjúkdómurinn á nánustu aðstandendur einstaklings sem þjáist af Alzheimer? Hvaða þjónusta er í boði fyrir einstaklinginn og maka hans? Hvað mætti betur fara? Maki getur upplifað ákveðið hjálparleysi eftir greiningu á Alzheimer. Um er að ræða ólæknandi sjúkdóm og framhaldið er því mjög óljóst. Helstu niðurstöður verkefnisins eru að betur mætti huga að andlegri heilsu í stuðningi við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra. Einnig sýna niðurstöður fram á mikilvægi samskipta á milli stuðningsneta einstaklingsins. Með því að vinna með aðstandendum er hægt að bæta gæði þjónustu til einstaklingsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karen Birna Ómarsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/30171
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/30171