Abstract
dc:description.abstractGreinargerð þessi er hluti af lokaverkefni til meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun í Háskóla Íslands. Var hún unnin samhliða heimildamyndinni Heim í Valhöll og greinir frá umfjöllunarefni hennar, auk fræðilegra nálgana á þeim miðlunarleiðum sem notaðar voru við gerð hennar, til dæmis óprentuðum heimildum og ljósmyndum. Einnig er heimildamyndin sem miðlunarleið skoðuð og Heim í Valhöll sett í samhengi við hugmyndafræði kvikmyndafræðingsins Bill Nichols. Loks er vinnuferlinu lýst frá upphafi til enda þar sem farið er yfir aðdraganda verkefnisins, rannsóknarvinnu, framkvæmd og eftirvinnslu. Heim í Valhöll segir frá ævi og starfi Pjeturs A. Ólafssonar, en hann var mikill athafnamaður og átti meðal annars stóran þátt í uppbyggingu Patreksfjarðar. Pjetur var langalangafi minn og snýr hluti myndarinnar að mér rannsaka sögu hans, en við móðir mín fórum í leiðangur til Patreksfjarðar og heimsóttum meðal annars ættaróðalið, Valhöll.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sara Elísabet Haynes 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29993
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29993