Back to results

University of Iceland

Fósturbörn: Úrræði barnaverndar og hagsmunir barna

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lokaverkefni til BA-prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Viðfangsefni hennar eru fósturbörn almennt og hverjir helstu áhrifaþættir eru þegar kemur að velferð þeirra, ásamt því er skoðað hvernig staða þeirra hefur breyst í gegnum tíðina. Niðurstöður sýna að nokkrir þættir hafa áhrif á velferð barna. Þar er helst að nefna tengslamyndun við umönnunaraðila, líðan hjá fósturforeldrum og skólaganga. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að því yngri sem börn fara í fóstur, þeim mun líklegra er að þau nái að mynda góð tengsl sem veitir þeim vellíðan. Viðhorf, hæfni og aðstæður fósturforeldra er einn af lykilþáttum þegar kemur að vellíðan fósturbarns. Væntingar verða að vera raunhæfar og góður undirbúningur og fræðsla getur haft jákvæð áhrif á viðhorf og hæfni. Breytingar á aðstæðum fósturforeldra geta haft áhrif á fóstur. Afstaða fósturbarna til kynforeldra fer meðal annars eftir aldri og þroska barns og aðstæðum kynforeldra. Erfiðleikar í samskiptum við kynforeldra geta haft neikvæð áhrif á líðan fósturbarns. Viðkomandi barnaverndarnefnd velur fósturforeldra að fengnu áliti Barnaverndarstofu. Ríkar kröfur eru gerðar til verðandi fósturforeldra og getur ferlið orðið langt við ráðstöfun barns í fóstur. Hvert barn er mismunandi og eru misjöfn úrræði sem henta fyrir hvert tilfelli. Að setja barn í fóstur er lokaúrræði barnaverndarnefndar, og er það aðeins gert þegar öll önnur úrræði hafa verið fullreynd og þegar fóstur er talið vera barninu fyrir bestu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Silja Sigurðardóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29976
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29976

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Silja Sigurðardóttir 1993-. Fósturbörn: Úrræði barnaverndar og hagsmunir barna. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29976